HÚSASJÁ

Móavellir 4

01-0306 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

119 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

2947 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



114 dagar á sölu

sell

89.000.000 kr

751.055 kr/m²

PRODOMO Fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega 3ja herbergja enda íbúð á 3ju hæð í lyftuhúsi við Móavelli 4 í Reykjanesbæ.

Vönduð og vel skipulögð eign. Birt stærð eignar skv fasteignaskrá HMS er 118,5 fm, þar af er geymsla 4 fm.

Góð staðsetning þar sem stutt er í verslanir og ýmsa þjónustu ásamt skóla, leikskóla og íþróttamannvirkjum.

Nánari lýsing :

Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur.

Eldhús, stofa og borðstofa er í opnu rými. Þar er parket á gólfum. Stílhrein innrétting með eyju í eldhúsi, þar er innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Frá stofurými er útgengt á rúmgóðar 23,4 fm svalir með svalalokun og harðviðarflísum á svalargólfi.

Sjónvarpshol með parketi á gólfi.

Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfum, skápar eru í þeim báðum.

Á baðherbergi eru flísar á gólfi og á veggjum, þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.

Í þvottahúsi eru flísar á gólfi, þar er góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur í borði og gluggi.

Sér geymsla er í sameign. Þar er epoxy á gólfi.

Eignin er staðsteypt og klædd að utan með áli og lerki. Gluggar úr ál/tré. Innréttingar eru sérsmíðaðar af Grindinni. Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt. Sér merkt stæði fylgir eigninn, þar er rafhleðslustöð.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarsson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða hakon@prodomo.is

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Móavellir 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28