HÚSASJÁ

Leynigata 1

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

128 m²

Stærð

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2023

Byggingarár

6560 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Heitur pottur



6 dagar á sölu

sell

129.900.000 kr

1.010.895 kr/m²

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Leynigata 1 – Heilsárshús í Grímsnesi

Glæsilegt heilsárshús á eftirsóttum stað í Grímsnesi með fallegu og óhindruðu útsýni yfir Ingólfsfjall, Búrfell og Heklu. Húsið stendur á góðri eignalóð innan svæðis með aðgangsstýrðu hliði og býður upp á næði, kyrrð og fallegt náttúruumhverfi. Um er að ræða afar vandaða eign með stórri verönd, heitum potti, sauna og góðu gestahúsi.

Eignin er skráð samtals 128,5 fm og skiptist í 94,1 fm aðalhús og 34,4 fm gestahús, auk þess er 15 fm aukahús sem er ekki skráð inn í heildarstærð eignarinnar. Húsið er byggt á steyptum grunni með gólfhita og sér öflug varmadæla um heitt vatn til hitunar og neyslu. Húsið er timburklætt og umhverfis það er um 160 fm verönd með heitum potti, sauna, grillskýli og hleðslustöð fyrir rafbíla. Lóðin er 6.560 fm að stærð.

Nánari lýsing

Í aðalhúsinu eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og forstofa. Eldhús, stofa og borðstofa mynda opið og bjart rými með gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni. Útgengt er á verönd um fjórar hurðar.

Eldhúsið er með vandaðri og rúmgóðri viðarinnréttingu með innfelldum ísskáp, uppþvottavél og vaski. Stór eyja er fyrir miðju með skúffum og skápum, spanhelluborði og vínkæli. Borðplötur og veggir eru klæddir kvartssteini frá S. Helgasyni.

Á gólfum er niðurlímt eikarparket frá Ebson og innihurðir eru svartlakkaðar eikarhurðir. Gardínur og myrkvunartjöld eru frá Casalisa og í öllum rýmum er innfelld lýsing.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með flísum frá Fioranese, en sömu flísar eru á gólfi í forstofu. Þar er innbyggð sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og vandaðar innréttingar í sama stíl og aðrar innréttingar í húsunum. Sturtu- og handlaugartæki eru frá ítalska framleiðandanum Gessi.

Gestahús

Gestahúsið samanstendur af opnu rými með fataskáp, baðherbergi og tækjarými/geymslu. Niðurlímt viðargólf er á alrými en flísar á gólfi og veggjum á baðherbergi. Á baði er innbyggð sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og innrétting.

Aukahús

Aukahúsið hefur verið einangrað og klætt að innan sem utan. Þar er bæði hiti og rafmagn. Húsið getur nýst sem auka svefnrými, skrifstofa eða fjölnota rými. Í dag er það nýtt sem geymsla og æfingarými.

Lóðin er fullfrágengin með góðum bílastæðum. Heimreið er upplýst með lágum staurum og hefur verið tyrfð með lyngtorfi til samræmis við náttúrulegan gróður svæðisins.

Stígur liggur að heitum potti sem er WiFi-stýrður og með einangruðu loki. Á suðurhluta lóðarinnar er sauna með útsýni í átt að Þingvöllum. Á pallinum stendur grillskýli/geymsluskúr.

Veröndin er um 160 fm og klædd fallegu og endingargóðu pallaefni frá Lunawood.

Hér er um að ræða vandað og vel útbúið heilsárshús á vinsælum stað í Grímsnesi þar sem stutt er í helstu golfvelli og náttúruperlur svæðisins. Eign sem hentar jafnt sem orlofsbústaður eða heilsárshús.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

Kort af Leynigata 1

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð