Leynigata 2
01-0101 · 805 Selfossi



652 dagar á sölu
89.900.000 kr
699.611 kr/m²
Borg fasteignasala kynna í einkasölu: Leynir er nýbyggðar verkefni af fullbúnum sumarhús/frístundahús á eignalóð, hægt er að hafa áhrif á gólfefni og innréttingar. 4 af 8 húsum eru seld.
ATH. myndir eru af tilbúnu samskonar húsi.
Myndband af Leyni.
Gatan Leynir.
Leynir 1 áætluð afhending haust 2025
Leynir 2 áætluð afhending júní-júlí 2025
Leynir 3 áætluð afhending febrúar 2025
Leynir 5 seld
Leynir 7 áætluð afhending september 2024
Leynir 9 seld
Leynigata 1 seld
Leynigata 2 seld
Hús á mynd er Leynir 7:
Húsið er samkvæmt teikningu 94.1fm að stærð, auk 34fm gestahúss. Samtals 128.1fm.
Steyptur grunnur og gólfhiti. Húsið eru hluti af heildarskipulögðu landsvæði/spildu, þar sem verða 8 hús samtals, öll eins.
Þannig að heildarskipulag svæðis og umhverfis verður stílhreint.
Húsið er kynnt með Varmadælu, sem er keyrð með rafmagni.
Staðsetning: Svæðið er skipulagt úr landi Miðengis sem er svæði með læstu/aðgangstýrðu hliði, til móts við Kerið á vinsælum stað í Grímsnesi.
Landrými er í laut að hluta og er umhverfi svæðisins fallegt og þar er lágreistur gróður og lyng eins og tíðkast á þessu svæði.
Húsið eru byggt sem heilsárshús, rétt utan við vaxandi þjónustsvæði á Selfossi, sem er aðeins í 10mín akstri frá Leynigötu.
Allar nánari upplýsingar veitir
Brandur Gunnarsson lögg.fasteignasali í síma 897-1401 brandur@fastborg.is
Victor Levi R. Ferrua lögg. fasteignasali í síma 868-2222 victor@fastborg.is
Ingimar ingimar@fastborg.is
Nánari skilalýsing er hér að neðan.
Lóð og teikningar
Lóðin skilast með 100 m2 sólpalli, bílastæði sem eru fyrir 3 bíla samtals 90 m2. Bílastæðið skal ekki vera lengra en 4 metra frá húsi. Allar tekningar liggja fyrir. Aðaltekningar, burðavirkisteikningar, lagna-og rafmagnsteikningar.
Sökklar og plata
Sökklar eru steyptir á púða skv burðarþolsteikningu, plata er vélslípuð.
Lagnir
Skólp og frárennsli verðu tengt við rotþró. Hitalagnir eru steyptar í plötu. Rör í rör kerfi er fyrir neysluvatn, lagt undir plötu. Ídráttarrör fyrir heitan pott er lagt.
Útveggir og milliveggir
Útveggir eru byggðir upp úr styrkleikaflokkuðu timbri, 45 x 145mm og klæddir með 9-12mm osb plötum að utan til stífingar. Vinddúkur utan um osb og klætt á lektur með bandagaðari grárri klæðiningu. Milliveggir úr 45x95 mm og klæddi með gips og spónaplötum/krossviðsplötum.
Þak og loft
Þak er byggt úr 45x245 mm sperrum, lektum, 1x6“ tommu timbri, isola D-glass þakpappa og 0,6 mm bárujárni.
Gluggar og hurðir
Gluggar og opnanleg fög eru ál/tré hvítir að innan og gráir að utan. Nánari lýsing á gluggum og hurðum má sjá í fylgiskjali.
Útveggir og rakasperra
Útveggir eru einangraðir með steinull, 145 mm. Rakasperra er fullfrágengin. Útveggir skilast klæddir með gips og spónaplötum/krossviðsplötum.
Loftaklæðning
Loftið er klætt með gipsi, spaslað, og málað.
Rafmagn
Rafmagn er ídregið og búið að tengja tengla og ganga frá rafmagnstöflu. Cover á tengla og rofa skilast fullfrágengið. Raflagnaefni kemur frá viðurkenndum aðilum.
Gert er ráð fyrir halogen/led lýsingu í stofu og eldhúsi en kúplar á öðrum stöðum.
Vatn og hitalagnir
Búið verður að ganga frá neysluvatni í veggi og tengja. Blöndunartæki skilast frágengin í vaska og innréttingar. Salerni skilast fullfrágengið.
Innréttingar og hurðar
Elhúsinnrétting er Bodbyn frá Ikea sjá fylgiskjal, eyja með helluborði og ofn ásamt skúffueiningum. Vaskur við vegg og skúffueiningar ásamt efri skápum. Innihurðir eru frá Húsasmiðjunni. Baðinnrétting er frá Húsasmiðjunni.
Baðfrágangur
Baðherbergi skilast fullfrágengið flísalagt.
Eldhús
Eldhústæki verða frá viðurkenndum framleiðanda helluborð, ofn, háfur og uppþvottavél
Gólfefni
Á gólfum verður vandað harðparket.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir

















