Austurhólar 8
01-0602 · 800 Selfossi



24 dagar á sölu
56.900.000 kr
710.362 kr/m²
ÁRBORGIR fasteignasala 4824800 kynna í einkasölu:
Björt og skemmtileg þriggja-fjögura herbergja íbúð á efstu hæð (íbúð 602) í nýlegu fjölbýli á Selfossi
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og veggir klæddir sléttu- og báruðu áli í bland við viðarklæðningu.
Gluggar eru ál/tré gluggar, hvítmálað timbur að innan en álklæddir að utan.
Íbúðin sem er 80,1m2 að stærð er björt og vel skipulögð og er fallegt útsýni frá henni.
Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Góður fataskápur parket er á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð og björt, parket er á gólfi og þaðan útgengi út á fínar svalir með fallegu útsýni.
Eldhús: Er í opnu rými með stofu parket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Parketlagt og þar er góður fataskápur.
Barnaherbergi: Parketlagt og fataskápur
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. gólfsturta, upphengt salerni, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Er innan íbúðar er með glugga og væri hægt að nýta sem þriðja svefnherbergi eða sem skrifstofu.
Hiti er í stéttum að húsi. Bílastæði eru malbikuð og frágengin.
Sorpskýli er á lóð við bílaplan. Lagnir eru fyrir hleðslustöðvar á bílaplani.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir



























