HÚSASJÁ

Björkurstekkur 12

02-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
59 myndir

197 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2022

Byggingarár

1313 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



301 dagar á sölu

sell

105.900.000 kr

537.563 kr/m²

Prima fasteignasala og Haukur Páll Ægisson lgf. kynna í einkasölu eignina Björkurstekkur 12 í nýlegu hverfi á Selfossi.

Björkurstekkur 12 sem er fimm herbergja parhús í nýlegu íbúðahverfi á Selfossi. Húsið er á einni hæð, byggt úr timbri, klætt að utan með 2 mm sléttri álklæðningu, alozink á þaki og þakkantur er úr áli. Gluggar og hurðir eru úr ál-tré Velfac. Húsið er einstaklega viðhaldslétt að utan. Húsið er 197,0 fm að stærð, þar af sambyggður bílskúr 41,7 fm.  Hönnun hússins tekur m.a. mið af því að viðhald sé í lágmarki og innra skipulag sett upp með það að markmiði að nýta sem best stærð íbúðar.  Húsið er staðsett innst inni í botnlanga og er í göngufæri við Stekkjarskóla.

Eignin skiptist eftirfarandi

Forstofa, stofa, eldhús, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og annað þeirra inn af hjónaherbergi, þvottahús og bílskúr.

Lýsing eignar

Lofthæð er 270 cm í öllum rýmum nema loft er upptekið í bílskúr.

Forstofa er flísalögð með skáp. Þaðan er gengið inn í eitt af svefnherbergjunum.

Eldhús og stofa mynda eitt opið rými, parket er á gólfi.

Eldhús er með svartri innréttingu tveimur ofnum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, eyja með helluborði og skúffum báðumegin.

Stofa er rúmgóð, björt og útgengt í garð.

Baðherbergi er flísalegt, baðinnrétting, handklæðaofn, upphengt salerni og sturtu. Það er hurð inn af baðherbergi og þaðan er útgengt út í garð.

Hjónaherbergi, fataherbergi og baðherbergi.

Hjóna og fataherbergið er parketlagt, í fataherbergi eru rúmgóðir fataskápar. Baðherbergi er inn af svefnherbergi og upphengt salerni, baðinnrétting, handklæðaofn og sturta.

Þrjú önnu svefnherbergi eru parketlögð með fataskápum.

Þvottahús er með rúmgóðum skápum á tveimur stöðum, innrétting, þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Innangengt í bílskúr.

Bílskúr er með steyptu gólfi og mikilli lofthæð.

Gólfhiti er í öllu húsinu.

Garður er þökulagður, mulningur í bílaplani og steypt sorptunnuskýli fyrir fjórar tunnur.

Virkilega falleg eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veita:

Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / haukurpall@primafasteignir.is

Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / 855-1544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:

Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Björkurstekkur 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55Mynd 56Mynd 57Mynd 58Mynd 59