HÚSASJÁ

Mávakambur 1

01-0107 · 415 Bolungarvík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

86 m²

Stærð

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

2422 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla



183 dagar á sölu

sell

39.900.000 kr

275.172 kr/m²

LANDMARK kynnir:  Virkilega vandað og nýlegt atvinnuhúsnæði í Bolungarvík sem skiptist í sal með mikilli lofthæð að hluta, millihæð og geymslurými ofan millihæðar. Samtals um 145 fm auk geymslurýmis.  Húsið er kynnt með varmadælu.

Skipting eignar:  Iðnaðarsalur: 85,6 fm, millihæð ca 60 fm og geymslyrými sem er ca 18 fm að grunnfleti en með lágri lofthæð - mjög gott geymslupláss.

Salurinn er mjög vel búinn með 3ja fasa tengi, háþrýstidælu á vegg með sápukerfi, vinnuborði með vaski svo eitthvað sé nefnt og hillum.  Rafmagn og vatn á báðum hæðum og er heitt vatn í öllum krönum tengt hitakút.

Millihæðin er mjög vel búin sem skrifstofuhúsnæði eða mjög gott íverurými með salerni, eldhúsinnréttingu og innfelldri lýsingu. Möguleiki er að setja upp sturtu á baðherbergi eða tengi fyrir þvottavél.  Framan við rýmið eru svalir með hliði þannig að auðvelt aðgengi er með alls kyns dót til geymslu eða eitthvað annað.  Ofan millihæðarinnar er svo rúmgott geymslurými.

Rafdrifin hurð er með fjarstýringu og er hurðin um 4,2 m á hæð og tæplega 3,5 m á breidd.  Útiljós / kastari er á framhlið hússins með tímastilli.  Steypt plan er fyrir framan húsið sem nær 12 m að götu og eru 8 m frá húsi á baklóð.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is

----------------------------------------------------------

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Mávakambur 1

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð