HÚSASJÁ

Hnjúkamói 10

01-0202 · 815 Þorlákshöfn

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

71 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

919 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Heitur pottur



28 dagar á sölu

sell

49.400.000 kr

700.709 kr/m²

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424 ) kynnir í einkasölu:  Hnjúkamóa 10, Íbúð 0202.  Falleg 3ja herbergja íbúð á efri hæð auk 6.7 m2 sér geymslu.

Íbúðin er með sérinngangi.   Á sameiginlegri lóð eru leiktæki fyrir börn og bekkur á notalegu útisvæði.

** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Eignin skiptist svo:

*  Anddyri með fataskáp.

*  2 rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskápum.

*  Stofu þaðan sem utangengt er á góðar svalir.

*  Eldhús með innréttingu frá HTH, helluborði, bakaraofn og háf frá AEG ásamt ísskáp og uppþvottavél.

*  Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, snyrtilegri innréttingu og sturtu.

*  Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.

*  Nýtt harðparket er á öllum gólfum og flísar á baði.

*  Sér útigeymsla fylgir íbúðinni. Ekki er sameiginleg hjóla-og vagnageymsla í húsinu.

*  Bílastæði er malbikað.   *  Lagnaleið er að bílastæði fyrir hleðslustöð.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:

KRÓNU VERSLUN

Apótekarann.

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:

Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:

Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.

Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.

Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.

Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring

Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.

Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.

** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is

Kort af Hnjúkamói 10

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð