HÚSASJÁ

Brautarholt 20

01-0406 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

36 m²

Stærð

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1953

Byggingarár

1534 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Hjólastólaaðgengi

Geymsla

Þvottahús



33 dagar á sölu

sell

47.500.000 kr

1.315.789 kr/m²

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:

Fallega, vandaða og vel skipulagða stúíóíbúð á fjórðu hæð í uppgerðu lyftuhúsi í grennd við miðbæ Reykjavíkur við Brautarholt 20. Eignin er skráð 36,1 fermetrar, þar af er geymsla 3,2 fermetrar.  Svalir snúa í vestur og vísa út í portgarð hússins sem er einungis aðgengilegur fyrir íbúa hússins. Þar er að finna veglega sameign með fundar-/veislusal, fullbúnu þvottahúsi og hjóla-/vagnageymslu. Garðurinn er einstaklega skjólgóður og sólríkur.

Nánari lýsing:

Íbúðin skiptist í alrými með eldhúsinnréttingu og baðherbergi. Eignin er fullbúin með gólfefnum, raftækjum og innbyggðu rúmi.

Við hönnun íbúðarinnar var nýting rýmis höfð að leiðarljósi. Íbúðinni fylgir innbyggt rúm, svokallað Murphy Bed sem á einfaldan hátt fellur að vegg ásamt góðri rúmdýnu. Innréttingar og skápar eru frá HTH. Eldhúsinnrétting með grárri mattri áferð, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp og keramik helluborði. Gólfefni eru hágæða vínilparket frá Gólfefnaval. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með vönduðum ítölskum flísum og með innréttingu frá HTH, walk-in sturta.

**Eignin er í útleigu – möguleiki á að yfirtaka leigusamning.**

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Brautarholt 20

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30
Brautarholt 20, 01-0406 | Húsasjá