HÚSASJÁ

Unagata 6

Lóð · 701 Egilsstöðum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
7 myndir

4048 m²

Lóð



4 dagar á sölu

sell

4.800.000 kr

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu UNAGATA 6, 701 Egilsstaðir.

Eignarlóð í frístundabyggð Unulækjar á Völlum, Fljótsdalshérað. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Lóðin er gróin og stendur í skipulögðu sumarbústaðalandi.

Lóðin er 4.047,6 m², eignarlóð samkvæmt skráningu HMS.  Lóðin er gróin, kalt vatn og rafmagn er komið að lóðarmörkum.

Aðkoma að Ásgötu frá Egilsstöðum, ekið er frá Egilsstöðum suður Skriðdals- og Breiðdalsveg nr. 95 að Útnyrðingsstöðum nr. 9354 þaðan er ekið Unalæk að lóð.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Smellið hér fyrir aftan á skipulag Unalækur, Völlum Fljótsdalshéraði: Deiliskipulagsuppdráttur. Skipulags og byggingarskilmálar.

Í skipulagi er gefin upp hámarks byggingarreitur sem jafnframt sýnir lágmarks fjarlægð frá lóðarmörkum.

Innan byggingareits er heimilt er að byggja allt að 160 m² frístundahús á einni hæð eða hæð með nýtanlegu risi. Þakform og þakhalli er frjáls.

Byggingar skulu þannig hannaðar að þær falli vel að legu lóðar.

Innan ytri byggingareits er heimilt að reisa allt að 60 m² aukabyggingu á einni hæð,sem gestastofu, bílskúr, verkfærageymslu  eða tómstundarrými.

Smellið hér fyrir landeignaskrá, land númer 232624.

Ekki er heimilt að vera með ferðaþjónusturekstur á lóðinni.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 251-8507.  Landeignanúmer 232624. Unagata 6.

Sumarbústaðaland 4.047,6 m².

Fasteignamat: 2.370.000 kr.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Unagata 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu