HÚSASJÁ

Borgartún 24A

01-0207 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

80 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

3905 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Lyfta

Bílastæði

Geymsla

Þvottahús



639 dagar á sölu

sell

85.900.000 kr

1.071.072 kr/m²

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is kynnir: SÝNUM DAGLEGA BORGARTÚN 24

Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu fjölbýlishúsi í Borgartúni í Reykjavík. Íbúðir afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. Stæði í bílageymslu. Þaksvalir í suður.

Heimasíða

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 207 í Borgartúni 24a, 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu og rúmgóðum svölum sem snúa út á Nóatúni, til suðausturs.. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 56,9 fM. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla fylgir íbúðinni sem er 7,8 fm. Svalir snúa í suð-austur. Sérstæði í bílageymslu (B32) fylgir íbúðinni.

Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.

Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.

Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.

Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð.

Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati.

Bókið skoðun:

Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is

Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Borgartún 24A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21