HÚSASJÁ

Eyravegur 34B

05-0402 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

46 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2023

Byggingarár

7131 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Lyfta



22 dagar á sölu

sell

43.500.000 kr

937.500 kr/m²

Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu, eignina Eyravegur 34b, 800 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 04-02, fastanúmer 251-8001 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eyravegur 34b er 5 hæða fjölbýlishús byggt árið 2023, í göngufæri frá miðbæ Selfoss og allri helstu þjónustu.

Um er að ræða 46,6 fm íbúð á fjórðu hæð í nýlegu lyftuhúsi á Selfossi.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, eitt svefnherbergi og  baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Einkasvalir sem snúa í norð-vestur. Af svölum er útsýni að Ingólfsfjalli, Ölfusá og Selfosskirkju.

Nánari lýsing:

Gengið er inn í parketlagða forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er baðherbergið á hægri hönd þar sem er gólfsturta, upphengt WC og innrétting. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu.

Stofa og borðstofa í björtu opnu rými með parketi á gólfum og útgengt þaðan út á svalir.

Eldhúsið er með hvítri innréttingu, heimilistæki frá Ormsson. AEG helluborð, bakarofn og innbyggð uppþvottavél.

Svefnherbergið er rúmgott með hvítum fataskáp og parketi á gólfum.

Á jarðhæð er sameiginleg vagna og hjólageymsla. Tvær sameiginlegar þaksvalir eru í byggingunni sem allir íbúar hafa aðgang að. Aðrar á fjórðu hæð og hinar á fimmtu. Gróin garður og frágengið bílaplan með rafmagnshleðslustaurum.

Snyrtileg og vel skipulögð íbúð á góðum stað á Selfossi. Frábær fyrstu kaup!

Nánari upplýsingar veitir:

Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun.

www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Kort af Eyravegur 34B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25