HÚSASJÁ

Grænaborg 2F

01-0201 · 190 Vogum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
19 myndir

130 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

2014 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



645 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

652.074 kr/m²

Fasteignaland fasteignasala kynnir glæsilega, vandaða og fallega nýja eign við Grænuborg 2 í Vogum.

*** Leiga með kauprétti í boði. Láttu 12 mánaða leigu ganga upp í kaupverð ***

Íbúðin er 3-4 herbergja, 130,2 fm  skv fasteignaskrá og er með sérinngangi. Stórar suðursvalir frá íbúðinni sem er á efri hæð.

Íbúðin er afhent fullbúin með gólfefnum og er laus til afhendingar. Fallegt útsýni er frá íbúðinni.

Lýsing:

Stór stofa og borðstofa með útgengi á útsýnissvalir, opið eldhús, tvö rúmgóð svefnherbergi, flísalagt baðherbergi með sturtu, þvottahús og geymsla.

Nánari upplýsingar veita

Fasteignaland fasteignasala í síma 599-6700  og á tölvupóstfang fasteignaland@fasteignalandi.is

Hörður Sverrisson, lgf s 777-5209, hordur@fasteignaland.is

Baðherbergi

-          Á gólfum og veggjum eru flísar 1m x 2.7m í marmara lit.

-          Loftræstikerfi er á baðherbergi með sér lögnum

-          Baðherbergi er með 80 cm dökk grárri innréttingu með hvítum postulínsvaski. Áferðin er með smá glans sem auðveldar þrif.

-          Baðherbergið er með 2 skápum þá einn með spegil fyrir ofan og einn langur.

-          Í sturtu er hitastýritæki með höfuð og handsturtu.

-          Í sturtu er vandað sturtugler með  Easy clean áferð til að auðvelda þrif.

-          Innbyggður salerniskassi með fallegu sturtuspjaldi, upphengd salerniskál með hæglokandi setu með extra glace húð.

Eldhús

-          Eldhúsinnréttingar eru hvítar og eru sérsmíðaðar með glans áferð.

-          Höldur eru ekki sýnilegar

-          U laga eldhús með eldhúshellu þar sem hægt er að hafa 2-3 stóla við.

-          Borðplata er úr Corian & er eldhusvaskur hannaður ofan í plötuna í sama efni.  Liturinn er dökkur marmaraáferð.

Eldhústæki eru frá Ormsson og eru eftirfarandi:

-          Eldavél – AEG Spanhelluborð m/Viftu. Hægt er að tengja saman tvö eldunarsvæði. Barnalæsing, sjálfvirköryggisslökkvun, tímastillir, hægt er að láta helluborðið og viftuna vinna saman o.s.frv.

-          Bakaraofn – AEG Veggofn blástursofn blástursofn m/kjöthitamæli svartur

-          Örbylgjuofn - AEG 26 lítra – 900 wött -stál

-          Ísskápur Innbyggður- AEG 177,9x54x54,9 með frysti fylgir íbúðum.

-          AEG Uppþvottavél fylgir íbúðum - 4 kerfi 3 hitast. – til innbyggingar.

Leik- og grunnskóli eru í næsta nágrenni og er áformað að reisa bæði nýjan leik – og grunnskóla í hverfinu á næstu árum samhliða stækkun hverfisins.

Um er að ræða frábærlega staðsett hverfi sem mun byggjast á næstu árum í fallegu, fjölskylduvænu og rólegu umhverfi við sjávarsíðuna. Hverfið er tengt núverandi byggð og því er stutt í alla helstu þjónustu.

Gert er ráð fyrir að Grænabyggð verði um 1500 manna hverfi og er heildarfjöldi íbúða sem áformað er að reisa á landinu um 800 á 10 ára tímabili. Um er að ræða blandaða byggð, með aðaláherslu á lítil sérbýli.

Uppbygging svæðisins er til 10 ára samkvæmt samkomulagi Grænubyggðar ehf. við Sveitarfélagið Voga. Með því að dreifa byggingartíma yfir 10 ár, er tryggt að uppbygging og stækkun gerist í hægum og öruggum skrefum og að nauðsynleg uppbygging innviða geti átt sér stað samhliða.

Kort af Grænaborg 2F

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu