HÚSASJÁ

Hallgerðargata 11A

01-0214 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

121 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2023

Byggingarár

2955 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



31 dagar á sölu

sell

107.900.000 kr

890.999 kr/m²

BORG fasteignasala kynnir: Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð, samtals 121,1 fermetrar, á annarri hæð í nýlegu lyftihúsi við Kirkjusand. Rúmgóðar svalir og afnotaréttur að stæði í lokuðu bílastæðahúsi. Vandað efnisval og nútímaleg hönnun. Góð staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, leik- og grunnskóla og þægileg tenging við stofnbrautir.

Skipulag og stærð: Íbúðin sjálf, sem er 110,0 fermetrar að stærð, skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús. Úr alrými er útgengt á rúmgóðar svalir. Eigninni fylgir 11,1 fermetra sérgeymsla sem staðsett er í kjallara.

Nánari lýsing

Anddyri og hol: Opið er frá anddyri inn í hol sem er miðja íbúðarinnar.

Eldhús: Stílhrein innrétting með ljúflokun. Eldhúsið er með tæki frá AEG; þar á meðal spanhelluborð, blástursofn og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Athugið að háfur hefur verið fjarlægður en fylgir með óuppsettur.

Stofa og borðstofa: Alrýmið er bjart og opið, stofa og borðstofa renna saman í eina heild. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar 14,4 fermetra svalir sem nýtast sem framlenging á íbúðinni yfir sumarmánuðina.

Svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð. Þau eru búin fataskápum í stíl við aðrar innréttingar íbúðarinnar.

Baðherbergi og þvottahús: Votrými eru flísalögð. Baðherbergið er með snyrtilegri innréttingu með ljúflokun.

Þvottahús: Innan íbúðar er sér þvottahús með góðu vinnuplássi og handlaug.

Gólfefni íbúðarinnar er harðparket sem flæðir óslitið um öll alrými og svefnherbergi. Flísar eru á baðherbergi.

Geymsla og bílastæði: Í kjallara er 11,1 fermetra sérgeymsla. Hægt er að leigja bílastæði í bílakjallara.

Húsið var byggt af Reir-Verk árið 2023. Staðsetningin við Hallgerðargötu er einstök, en þar mætast nálægð við miðborgina og kyrrð náttúrunnar með fallegum gönguleiðum meðfram sjávarsíðunni og afþreyingu í Laugardal innan seilingar. Hverfið einkennist af þjónustu í næsta nágrenni. Ungbarnaleikskóli er starfræktur í sjálfu húsinu og í næsta húsi við hliðina er lifandi atvinnustarfsemi á jarðhæð, þar á meðal kaffihús, snyrtistofur og hárgreiðslustofa. Heilsugæslan Kirkjusandi er í næsta nágrenni. Allar helstu verslanir og þjónusta Laugarneshverfisins eru í þægilegu göngufæri, sem gerir staðsetninguna kjörna fyrir þá sem vilja sameina þægindi og lífsgæði.

Nánari upplýsingar veitir

Gunnlaugur Þráinsson Lögg. fasteignasali, í síma 844 6447 - gunnlaugur@fastborg.is.

Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali, í síma 868 2222 - victor@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Hallgerðargata 11A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu