HÚSASJÁ

Jöfursbás 11B

01-0203 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

55 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

5648 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Þvottahús



39 dagar á sölu

sell

53.500.000 kr

965.704 kr/m²

Hraunhamar fasteignasala kynnir í einkasölu bjarta og rúmgóða 3 herbergja íbúð á annarri hæð í fjölbýli við Jöfursbás 11B í Reykjavík. Íbúðin er skráð samkvæmt HMS 55,4 fm og allir fermetrar innan eignar.

Frábær fyrstu kaup og fast hámarksverð. Forgangur að kaupum hafa einstaklingar á aldrinum 18-40 ára.

Nánari lýsing:

Forstofa. Flísalagt rými með fataskáp og fatahengi.

Stofa. Parketlögð björt stofa með útgengi út á suðursvalir.

Svefnherbergi I. Parketlagt með góðum skápum.

Svefnherbergi II. Parketlagt með skáp.

Baðherbergi. Innrétting með handlaug, upphengt salerni, "walk in" sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.

Eldhús. Rúmgóð innrétting með eyju. Tengi fyrir uppþvottavél, bakaraofn, hella og vifta. Stór eyja með barstólum og stækkun.

Á jarðhæð er sameiginleg hjólageymsla og þvottahús með vélum sem húsfélagið á.

Í sameign er einnig salur sem íbúar geta leigt.

Íbúðirnar hafa haft afnot af matjurtagarði sem Reykjavíkurborg lánar Jöfursbás 11.

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Örn Ágústsson löggiltur fasteignasali í s. 888-7979 eða einar@hraunhamar.is

Um Þorpið vistfélag í Gufunesi:

Þorpið vistfélag er á sjávarlóð í þessu nýja hverfi í Gufunesi. Frá húsinu er glæsileg sjávarsýn og útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Göngu- og hjólastígar verða meðfram ströndinni sem tengjast öðrum íbúðarsvæðum í Grafarvogi. Húsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leiksvæði og grasfleti. Tekið var tillit til sólarátta við skipulagningu byggðarinnar þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli. Við innganginn er sólríkt miðlægt torg fyrir framan sameiginleg rými þar sem er veislusalur/vinnurými, sameiginlegt þvottahús og pósthús/búr fyrir aðsendan póst og vörur. Við torgið sjálft er leiksvæði fyrir yngri börn, en sparkvöllur og boltasvæði í garði á móti sjó. Á torginu er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Matjurtagarðar í eigu Reykjavíkurborgar eru til afnota fyrir íbúa til ræktunar kjósi þeir það.

Deiliskipulag fyrir Gufunes, nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni.

Í Gufunesi er verið að byggja upp einstakt hverfi í borginni. Þar er fyrirhuguð blönduð byggð. Íbúðir og smærri atvinnurekstur. Lögð verður áhersla á afþreyingu og útivist í þessu manngerða og náttúrulega landslagi með fallegri fjallasýn við sjávarsíðuna.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Kort af Jöfursbás 11B

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð