Jöfursbás 11B
01-0109 · 112 Reykjavík



11 dagar á sölu
59.800.000 kr
903.323 kr/m²
Guðbergur s 8936001 og fasteignasalan Bær kynna: Frábæra 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sér afnotarétti við Jöfursbás 11b íbúð 109. Gufunesi.
Nánari lýsing: Anddyri með flísum á gólfi og fatahengi. Eldhús er með góðu skápaplássi og fullbúið tækjum(ath innréttingin hefur verið stækkuð). Stofa er rúmgóð, samtengd eldhúsi og með útgengi út á verönd.
Svefnherbergin eru 3 með parket á gólfum og fataskápum. Baðherbergi er flísalagt, upphengt klósett, sturta og tengi fyrir þvottavél. Hjóla og vagnageymsla eru í sér húsi í sameign hússins.
Sameiginlegt þvottaherbergi er í sameign hússins með þvottavélum sem eru eign húsfélagsins.
Frábært hverfi stutt í náttúruna og fallegt umhverfi.
Verið er að standsetja sal í sameign sem verður ætlaður undir afmæli og eða fundarhöld á vegum íbúa hússins.
Íbúar eiga rétt á matjurtagarði (og eru þau með 12 fm) sem er í eigu Reykjavíkur borgar
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson s 8936001 eða beggi@fasteignasalan.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





















