HÚSASJÁ

Dugguvogur 11

03-0102 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

78 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2023

Byggingarár

4994 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Hjólastólaaðgengi

Geymsla

Þvottahús



5 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

892.720 kr/m²

LIND Fasteignasala og Páll Konráð kynna með stolti: Nýleg og glæsileg 3ja herbergja íbúð við Dugguvog 11 í Vogabyggð með mikilli lofthæð og bílastæði í kjallara.

Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali,  S:820-9322, pall@fastlind.is.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Íbúð 102: Er 78,3 fermetra 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með svölum. Þar af er geymsla 13,7 fermetrar að stærð.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús opið við alrými/stofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn af. Útgengi á svalir úr stofu.

Harðparket á gólfi í alrými og herbergjum, í votrýmum eru flísar.

Innréttingar: Í eldhúsi og baðherbergi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði.

Eldhústæki: Íbúðin fylgja eldhústæki af gerðinni AEG., span helluborð, innbyggður kæliskápur, innbyggð uppþvottavél, blástursofni og vifta.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturta eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe, hitastýrð eða einnar handar. Þvottahús er innan baðherbergis.

Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Dugguvogur 11

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu