Jöfursbás 11A
04-0303 · 112 Reykjavík



10 dagar á sölu
52.474.401 kr
947.191 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
Mjög falleg 55,4 fm 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Jöfursbás 11A í Reykjavík. Sér inngangur af svalagangi. Íbúðin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu og eldhús, baðherbergi og tvö herbergi. Svalir til vesturs. Sameiginleg bílastæði með sameiginlegum hleðslustöðvum.
Nánari uppl. veitir: Magnea Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, magnea@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð forstofa með skáp.
Stofa og eldhús: Samliggjandi stofa og eldhús. Rúmgott og bjart rými. Gólf er parketlagt. Falleg hvít IKEA innrétting er í eldhúsi. Ofn og háfur úr stáli. Pláss fyrir uppþvottavél. Svalir eru út af stofu til vesturs. Sjávarútsýni. Stofurými nýtist mjög vel. Hurð inn í barnaherbergi er hjá eldhúsinu.
Hjónaherbergi: Parketlagt hjónaherbergi með skápum. Rennihurðir eru á herberginu.
Barnaherbergi: Parketlagt barnaherbergi.
Baðherbergi: Hvít innrétting. Upphengt salerni. Walk- in sturta. Gólf er dúklagt. Lögn fyrir þvottavél.
Í sameign er þvottahús með vélum. Einnig er sameiginlegur salur, með eldhúsi og snyrtingu, sem verið er að taka í notkun. Í sér húsi í miðlægum garði er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Við íbúðarbyggðina eru matjurtagarðar í landi Reykjavíkurborgar.
Frábær fyrstu kaup. Fast verð er á íbúðunum samkvæmt þinglýstri kvöð. Forgang að íbúðunum hafa einstaklingar á aldrinum 18-40 ára. Ef tveir eða fleiri einstaklingar sækjast eftir sömu íbúð, þá ganga þeir fyrir sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð en að öðru leyti ræður hlutkesti. Byggingaraðili er Þorpið vistfélag.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



















