Jöfursbás 11A
04-0202 · 112 Reykjavík



3 dagar á sölu
52.400.000 kr
945.848 kr/m²
**** ATH. Forgang hefur ungt fólk og fyrstu kaupendur á aldreinum 18-40 ára ****
Trausti fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu húsi að Jöfursbás 11. Sérinngangur frá sameiginlegum svölum. Frábær kaup fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur í náttúruparadís við sjóinn.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísar á gólfi.
Stofa og eldhús eru í alrými með parket á gólfi þar sem útgengt er á svalir.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og viftu yfir helluborði.
Hjónaherbergi er með góðum skápum og parket á gólfi.
Barnaherbergi er með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er með dúk á gólfi, sturtuklefa, upphengt salerni, góða innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is og Katarzyna Kleinschmidt, aðstoðamaður fasteignasala, í síma 774-2730 eða katarzyna@trausti.is.
Byggð Þorpsins-Vistfélags í Jöfursbási 11 í Gufunesi er brotin upp í þriggja til fimm hæða þyrpingu íbúðarhúsa sem hverfist um miðlægt torg og garða. Íbúðir eru samtals 137. Göngustígar í nágrenni eru tengdir inn og í gegnum í svæðið. Áhersla er á vandaða hönnun og góða rýmisnýtingu íbúðanna sem eru af fjórum gerðum; stúdíó, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Þrír stiga- og lyftukjarnar eru í íbúðarhúsunum og eru þau tengd saman um svalaganga og brýr. Byggðin hefur létt yfirbragð og er fjölbreytt í lita- og efnisvali. Um er að ræða 5 íbúðarhús, 3ja hæða í suðurhluta og 4ra hæða í vestur- og miðhluta og 5 hæða í austurhluta lóðarinnar.Staðsetning húsa innan hverfisins er ákvörðuð eftir veðurfræðilegri ráðgjöf til að mynda skjól um sólríka garða og torg.
Húsin eru verksmiðjuframleidd úr steyptum einingum sem gerðar eru innanhúss við bestu aðstæður. Burðarkerfi húsanna er byggt upp með forsteyptum svokölluðum samlokueiningum í útveggjum. Undirstöður eru forsteyptar en botnplata er staðsteypt. Innveggir á milli íbúða og íbúða og gangs eru úr forsteyptum einingum. Einangrun útveggja er forsteypt í samlokuútveggjaeiningarnar. Gluggar og hurðir eru úr timbri, formálaðir og settir í eftirá. Svalir og svalagangar eru úr forsteyptum einingum sem sitja á stálsúlum.
Sameiginleg sameign allra áfanga eru byggðir í öðrum áfanga utan hjóla- og vagnagreymslu sem er byggð samhliða fjórða áfanga.
Íbúðirnar eru á sjávarlóð nyrst í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsilegt útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar á borgarlandi meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi fyrir sunnan og ofan þessarar nýju byggðar. Megin stígar innan lóðar eru malbikaðir, við aðkomu og innganga eru stéttar hellulagðar. Lögð er áhersla á algilda hönnun þar sem aðgengi allra er tryggt. Gert er ráð fyrir trjágróðri við megin gönguleiðir og til rýmismyndunar við dvalarsvæði. Íbúðarhúsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leikvöll og grasfleti. Torgið er við aðalinngang hverfisins við sameiginleg rými íbúa. Leik- og dvalaraðstaða er norðan megin gegnt ströndinni. Tekið er tillit til sólarátta og byggð skipulögð þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli fyrir veðri og vindum.Lögð er áhersla á sameiginlegan frágang allra garðrýma.
Við íbúðarbyggðina eru matjurtagarðar í landi Reykjavíkurborgar til afnota fyrir íbúa til ræktunar. Þar er heimilt að gera vermireiti og gróðurskýli.
Deiliskipulag fyrir Gufunes, nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




















