Berjateigur 27
01-0101 · 250 Suðurnesjabæ



21 dagar á sölu
54.500.000 kr
672.010 kr/m²
Stuðlaberg fasteignasala kynnir 3ja herbergja 81,1m² glæsilega íbúð í raðhúslengju í fjölskylduvænu og nýju hverfi í Garðinum við Berjateig 27. Eignin var byggð 2022 og er á einni hæð með sérinngangi að austanverðu og aðgengi út á sólpall með skjólveggjum að vestanverðu. Í nágrenni er öll helsta þjónusta, grunnskóli og leikskóli, sundmiðstöð, líkamsrækt og verslun.
Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa með parket á gólfi og fataskáp.
Eldhús með hvítri snyrtilegri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, ofni og örbylgjuofni. Harðparket er á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu alrými með harðparketi og útgengi út á timburklæddan sólpall með skjólveggjum.
Hjónaherbergi með plássmiklum fataskáp.
Svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Þvottaaðstaða er innan baðherbergis með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla er innan íbúðar.
Sólpallur með vestur verönd.
Innkeyrslan er steypt og gert er ráð fyrir hleðslu fyrir rafmagnsbíl. Einnig er hitalögn í bílaplani.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Brynjar Guðlaugsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-5464 eða 420-4000
brynjar@studlaberg.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






















