Smiðjustígur 11B
01-0102 · 845 Flúðum



47 dagar á sölu
54.900.000 kr
800.292 kr/m²
Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson sími 775-1515, löggiltur fasteignasali, netfang: jason@betristofan.is kynna: SMIÐJUSTÍGUR 11 B sem er 68,6 fermetra raðhús. Húsið er innan við 3ja ára gamalt.
NÝ FULLBÚIN GLÆSILEG RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ GÓLFHITA.
Um er að ræða einstaklega vel skipulagt og vandað raðhús í grónu hverfi á Flúðum. 
Nánari lýsing:
Komið inn í anddyri, baðherbergi, opið rými með eldhúsi, eyju og stofu. 2 svefnherbergi. Úr stofu er útgengi út á pall sem snýr til suðurs.
Eldhús er með hvítlakkaðri vandaðri innréttingum frá HTH með fræstum gripum:
Vönduð eldhústæki frá AEG. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur með frysti, spanhelluborð með fjórum hellum og veggofn.
Baðherbergi eru fullbúið með flísum, walk in sturtu með glerveggjum, hvítlökkuð innrétting með spegli, ljósum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.  Gólfefni eru harðparket á öllum rýmum nema baðherbergi. 
Gólfhiti er í öllum rýmum íbúða.
Almennt:
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og afhendast fullbúnar samkvæmt byggingastigi 4 samkv. ÍST 51:2021
Útveggir langhliða eru timbur en allir veggir milli íbúða eru steinsteyptir ásamt gaflveggjum.
Húsin eru klædd að utan með grálituðu innbrenndu áli, þ.e. þak og útveggir ásamt því að gaflar og hluti bakhliðar eru viðarklædd með lerki.
Sérgeymslur fylgja með hverri íbúð ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í miðjurými hússins með útgengt í garðinn til suðurs.
Útgengi er úr stofu íbúða í suðurgarð og fylgir sólpallur með hverri og einni íbúð. 
Mikil lofthæð er íbúðunum eða tæpir 4,40 mtr. sem eykur á rými, birtu og glæsileika, ásamt því að fallegir bitar setja smekklegan svip. 
Risgeymslur eru yfir hverri íbúð, þ.e. yfir baðherbergi. 
Smekklegir ljóskastarar eru í stofuloftum íbúða og í svefnherbergjum, innfelld loftljós á baðherbergi.
Aðgengi að lagnaleið fyrir rafmagnskapal fyrir bílhleðslu er til staðar fyrir framan hvert hús. 
Sorpgeymslur verða uppsettar á bílaplani fyrir miðju húsalengjunnar. 
Bílaplön eru malbikuð og lóðin við húsið frágengin og tyrfð við enda og til suðurs. 
Flúðir og nágrenni eru sérlega heillandi svæði til búsetu vegna mjög góðra innviða sveitarfélagsins, þjónustu, skólamála, afþreyingar, náttúrufegurðar og veðursældar.   
Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali. Netfang: jason@betristofan.is S: 775-1515
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
























