HÚSASJÁ

Nónhamar 6

02-0102 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

64 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2023

Byggingarár

2284 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla



33 dagar á sölu

sell

60.900.000 kr

942.724 kr/m²

Fasteignamarkaðurinn ehf. sími 570-4500 kynnir til sölu glæsilega nýlega 2ja herbergja 64,6 fermetra íbúð á jarðhæð með viðarverönd til suðurs og sérinngangi af lóð í nýju vel staðsettu fjölbýlishúsi með lyftu í Hamraneshverfinu í Hafnafirði. Eignin er laus til afhendingar strax.

Íbúðin er 64,6 fermetrar að stærð og þar af er sérgeymsla innan íbúðarinnar. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu fylgja.

Eignin skiptist í: forstofu, hol, svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, eldhús, stofu / borðstofu og sérgeymslu.

Lýsing eignar:

Forstofa, parketlögð og með fataskáp.

Hol, parketlagt.

Eldhús, parketlagt með innréttingum frá AXIS, eldhústæki eru frá AEG og blöndunartæki frá Tengi.

Stofa / borðstofa, parketlögð og björt með útgengi á rúmgóða og skjólsæla viðarverönd til suðurs.

Herbergi, parketlagt og með fataskápum.

Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting og flísalagður sturtuklefi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara í baðherbergi.

Geymsla, er innan eignar og er flísalögð.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð hússins, með útgengi á lóð.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í Hamraneshverfinu í Hafnafirði þaðan sem stutt er í leikskóla, grunnskóla og náttúruna. Lyfta er í húsinu og fjöldi sameiginlegra bílastæða á lóð.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Kort af Nónhamar 6

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð