Nónhamar 8D
01-0405 · 221 Hafnarfirði



632 dagar á sölu
66.900.000 kr
836.250 kr/m²
Betri stofan Borgartúni 30 og Jason Kristinn löggiltur fasteignasali kynnir: Virkilega vel skipulagða og fullbúna, 3-4 herbergja endaíbúð á 4. hæð við Nónhamar 8 í 221, Hafnarfirði. Eignin er þriggja til fjögurra herbergja 80 fm. á 4. hæð í nýlegu 20 íbúða lyftuhúsi. Myndir af íbúð eru teknar áður en gólfefnin voru sett á en eignin er í leigu í dag.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með parket á gólfum og fataskápum.
Stofa og borðstofa er í opnu alrými með eldhúsi, rúmgóð stofa með útgengi á svalir.
Eldhús er opið við stofu. Eldhúsinnrétting er ljósgrá Melamine með svartri Quartz borðplötu. Span helluborð, ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Svefnherbergi eru tvö-þrjú talsins þeim fylgja fataskápar í sama lit og efni og er á eldhúsinnréttingu. Parket á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf að hluta og gólf með 60x60 flísum, upphengt salerni, sturtuklefi og innrétting við vask með ljúflokun á skúffum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar með glugga og opnalegu fagi. (mögulega hægt að nýta sem barnaherbergi)
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Nánari upplýsingar:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - jason@betristofan.is
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is
Telma Rut Frímannsdóttir, Aðstoðarmaður fasteignasala í síma 772-3555 - eða telma@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir



















