Háheiði 13D
01-0104 · 800 Selfossi



189 dagar á sölu
44.900.000 kr
324.891 kr/m²
Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 og Hús fasteignasala kynna í sölu iðnaðarhúsnæðið Háheiði 13D, Selfossi. Nýlegt og snyrtilegt iðnaðarhúsnæði alls 138,2 fm. Grunnflötur neðri hæðar er 96,4 fm auk 41,8 fm millilofts. Salerni með sturtu er á neðri hæð. Góður stigi með handriði liggur upp á milliloftið. Milliloftið er parketlagt. Á milliloftinu framanverðu er smekklegt handrið og opið niður í salinn.
Gólfhitalagnir. Góð lýsing. Loftræsing.
Góð lofthæð en vegghæð er rétt tæpir 5,0 m við útvegg. Breidd 5,95 m og lengd 15,54 m að innan máli. Innkeyrsluhurð er 4,3 m há og 4 m breið. Innkeyrsluhurð með rafmagns opnara. Gönguhurðir bæði að framan og aftan. Burðarvirki úr límtré, klætt með yleiningum. Epoxy á gólfum. Lóðin framan við hús er malbikuð og einnig ræma aftan við hús. Sérnotafletir 5,0 m framan við hús og aftan við hús.
Kaupandi yfirtekur áhvílandi VSK kvöð sem hvílir á húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996, steindor@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir












