HÚSASJÁ

Grensásvegur 1E

01-0109 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

85 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

9038 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Þvottahús



307 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

942.217 kr/m²

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Afar falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérafnotarétti/timburverönd í nýlega byggðu húsi (2022) við Grensásveg

Veglega frágengin íbúð með aukinni lofthæð að hluta (allt að 2,85 m), innihurðir eru einnig extra háar 2,2 m.

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is

Lýsing eignar:

Forstofa: Harðparket á gólfi, fataskápar.

Stofa: Rúmgóð stofa er opin við eldhús, harðparket á gólfi, gólfsíðir gluggar, útgengt á skjólgóða timburverönd með sérafnotarétti sem snýr í vestur.

Eldhús: Falleg innrétting (hvít og brún viðarlituð), eldunareyja áföst við vegg sem unnt er að sitja við, mjög gott skápa og vinnupláss, innfelld eldhústæki, niðurtekin loft með innfelldri lýsingu.

Herbergi 1: Mjög rúmgott hjónaherbergi, harðparket á gólfi, fataherbergi með léttum vegg.

Herbergi 2: Gott barnaherbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.

Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, innrétting undir vaski og stór vegghengdur spegill ofan við vask, upphengt salerni, flísalagður sturtklefi með glerhlið sem gengið er slétt inn í, handklæðaofn.

Þvottahús: Innan íbúðar, flísar á gólfi, tengi fyrir vélar, hvít innrétting með efri og neðri skápum ásamt skolvask.

Fallegur sameiginlegur inngarður er við húsin með göngustígum, lýsingu og leiktækjum.

Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara hússins. Sameiginleg hjóla&vagnageymsla er í kjallara hússins.

Bílakjallari er undir húsinu þar sem íbúar geta leigt sér stæði

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is

Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Kort af Grensásvegur 1E

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð