Valhallarbraut 756
02-0315 · 262 Reykjanesbæ



100 dagar á sölu
31.900.000 kr
721.719 kr/m²
Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Valhallarbraut 756.
Um er að ræða tveggja herbergja íbúð, 44,2 fm. á þriðju hæð, með sérgeymslu í sameign.
Íbúð merkt 315
Eignin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu og eldhús í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu.
Nánari lýsing:
Komið er inn um anddyri með parket á gólfi.
Stofa/borðstofa og eldhús er í opnu björtu rými með parket á gólfi.
Eldhús hefur snyrtilega innréttingu, helluborð, vifta og ofn.
Svefnherbergi hefur parket á gólfi.
Baðherbergi hefur dúk á gólfi, góð innrétting, salerni og baðkar með sturtuhaus.
Þvottaaðstaða er innan eignar.
Sérgeymsla um 2 fm. að stærð í sameign ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Stigagangur er snyrtilegur.
Staðsetningin er góð, stutt í leik- og grunnskóla, líkamsræktarstöð og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




