HÚSASJÁ

Austurvegur 57

02-0104 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

88 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2021

Byggingarár

7423 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



394 dagar á sölu

sell

76.900.000 kr

875.854 kr/m²

Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali kynna í einkasölu Austurveg 57, íbúð 104, 800 Selfossi.

Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með bílastæði í bílageymslu í nýlegu fjölbýlishúsi fyrir 55 ára og eldri.

Húsið er vel staðsett, stutt er í alla almenna þjónustu.

Eignin skiptist í 79,9 m² íbúð og 7,9 m² geymslu, samtals 87,8 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar:

Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og garðskáli. Í sameign er sér geymsla auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu. Sér bílastæði er í bílakjallara.

EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Nánari lýsing:

Anddyri með fataskáp.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá alrými út í garðskála sem snýr til suðurs.

Eldhús er opið við stofu, þar er innrétting með eyju. Helluborð og háfur eru í eyju, gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu.

Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, í báðum eru fataskápar.

Á baðherbergi eru flísar á gólfi og í sturtu, upphengt salerni, innrétting og speglaskápur.

Þvottaaðstaða, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, er á baðherbergi.

Gólfefni: Á öllum rýmum íbúðar, að baðherbergi frátöldu er vínylparket frá Agli Árnasyni.

Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Bílastæði, B48, í bílakjallara fylgir eigninni, þar er rafmagnstengill fyrir hleðslustöð.

Sameiginleg bílastæði og sorpskýli eru á lóð.

Lyfta er staðsett við inngang íbúðarinnar, hana er hægt að taka niður í kjallara þar sem geymslur og bílastæði eru.

Í gegnum kjallara er innangengt að stigahúsi Austurvegar 51-53 og félagsaðstöðu í Grænumörk. Sameiginleg bílaþvottaaðstaða er í kjallara.

Nánar um húsið:

Austurvegur 55-57 er fjölbýlishús á þremur hæðum auk kjallara. Húsið var byggt af Jáverk árið 2021 og í því eru alls 27 íbúðir. Aðalhönnuðir hússins eru Úti og inni arkitektar.

Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með flísum og járni. Þak er viðsnúið, slétt, staðsteypt. Gluggar og útihurðir eru frá Idex og allt gler er tvöfalt K-gler. Lóð er fullfrágengin og snyrtileg. Lyfta er í húsinu sem tengir kjallara og hæðirnar þjár. Malbikuð bílastæði við húsið eru í sameign.

Lóð er sameiginleg 7422.7 m² leigulóð í eigu sveitarfélagsins Árborgar, lóðarleigusamningur var gerður þann 19. mars 2021 og gildir hann til 25 ára.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is.

Ath. Húsgögnum hefur verið bætt inn á myndir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Austurvegur 57

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24