HÚSASJÁ

Strandvegur 26

02-0401 · 900 Vestmannaeyjum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
40 myndir

116 m²

Stærð

2

Herbergi

1947

Byggingarár

3591 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



13 dagar á sölu

sell

119.900.000 kr

1.033.621 kr/m²

Heimaey fasteignasala kynnir stórglæsilega endaíbúð á 4. (efstu)hæð að Strandvegi 26 Vm. merkt 0401. Eignin er í heild 116 m2 að stærð og þar af er stór 9 m2 sérgeymsla í kjallara. Einnig er 28,1 m2 bílastæði í bílageymslu  ásamt 9 m2 svölum til vesturs, svo og hlutdeild í sameign. . Frábært  útsýni af svölum til vesturs og austurs.  Allt handverk í eigninni er til fyrirmyndar

Seljandi hefur ekki búið í eigninni, heldur nýtt hana eingöngu þegar hann fer til Eyja og því er eignin eins og ný.

Um er að ræða glæsilegt eldhús, stóra stofu með útgang 9 m2 flísalagðar svalir, 2 stór herbergi með parket á gólfi, 2 snyrtingar , þvottahús, sérgeymsla í kjallara, bílastæði í bílakjallara þar sem búið er að leggja rafmagn fyrir hleðslustöð.

Innréttingum var breytt, ljós eru með ljósastýringu og sérsniðin gluggatjöld á allri íbúðinni og tvöfaldur ísskápur fylgja. Þvottavél og þurrkari geta lika fylgt og jafnvel  húsgögnin líka.

Eintstakt útsýni af vestursvölum og einnig austursvölum þar sem Eldfell og nýja hraunð sjást vel. Eignin er innsta íbúðin í stigaganginum og því er hægt að setja út borð og stóla og gleypa í sig morgunsólina með morgunkaffinu og nýju meðlæti frá Vigtinni sem er í 100 metra fjarlægð. Frábærir nágrannar á efstu hæðinni og svo mé ekki gleyma litlu Grá og Litla Hvít á 2.  hæð í næsta húsi,  þar sem er gluggasýn til þeirra að utan.

Vastursvalir eru líka mjög skjólgóðar bæði í vestan-  norðanáttinni þegar sólin skín.

Nóg af gestabílastæðum á bílaplani austan eignar.

Eignin telur (inngangur af austur svölum):

Anddyri/hol, parket á gólfi, góðir skápar

Eldhús, glæsileg eldhúsinnrétting, parket á gólfi

Stofa, stór og góð stofa með útgang út á vestursvalir með miklu útsýni

Herbergi 1, stórt og gott,parket á gólfi

Herbergi 2, stórt og gott, parket á gólfi

Snyrting, glæsileg innrétting með ljósaspegli, baðkar, veggskápur,  handklæðaofn, upphengt WC, flísar í hólf og gólf

Snyrting 2, við inngang, nett glæsileg innrétting með ljósaspegli, Walkin sturta upphengt WC, flísar í hólf og gólf

Þvottahús/geymsla, rúmgott þvottahús með flísum á gólfi

Geymsla, stór og góð sérgeymsla í kjallara

Bílastæði í bílakjallara, endabílastæði í bílakjallara . Búið að leggja rafmagn fyrir hleðslustöð í bílastæðið.

Glæsileg eign á eftstu hæð að Strandvegi 26. Eign með frábæru útsýni af báðum svölum svo og öðrum gluggarýmum.  Sjón er sannarlega sögur ríkari.

Kort af Strandvegur 26

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu