Heiðarstekkur 8K
01-0203 · 800 Selfossi



142 dagar á sölu
59.900.000 kr
650.380 kr/m²
Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Nýlega, virkilega snyrtilega og bjarta fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi, Heiðarstekk 8. Íbúðin er 92,1 fm. Húsið er byggt 2022 úr forsteyptum einingum. Malbikað bílaplan og hellulögn. Rafhleðsla fyrir bíla á bílaplani. Frábær staðsetning í suð-vesturhluta bæjarins í göngufæri frá Stekkjarskóla og leikskóla. Íbúðin er ný máluð og tilbúin til afhendingar.
ÍBÚÐ: Komið inn í flísalagða forstofu með innfelldum fataskáp og fínum skóhirslum. Í opnu rými þar sem er eldhús, stofa og borðstofa er útgengi á fínar svalir með fallegu útsýni. Baðherbergi er flísalagt, sturta með glervegg, handklæðaofn, upphengt wc og innrétting. Í sérherbergi er þvottahús með vinnuborði, efri skápum og skolvaski. Þrjú góð svefnherbergi, eitt af þeim hjónaherbergi með stórum fataskáp og einnig eru fataskápar í barnaherbergjum. Harðparket er á gólfum. Fallegar innréttingar, skápar og vönduð heimilistæki.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni ásamt hjóla- og vagnageymslu í sameign á hæðinni.
Nýleg, björt og falleg íbúð! Bókið skoðun - sýni samdægurs!
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan HÚS því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna













