Víkurmói 2
01-0404 · 800 Selfossi



1 dagar á sölu
53.900.000 kr
689.258 kr/m²
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Víkurmói 2. Góð þriggja herbergja nýleg íbúð 78,2 fm á fjórðu og efstu hæð í lyftu blokk. Frábært útsýni til suðurs og vesturs.
Geymsla með glugga innan íbúðar sem gefur ýmsa möguleika.
Húsið er byggt árið 2022 úr forsteyptum einingum.
Íbúðin er með forstofu, eldhúsi, borðstofu og stofu, tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi og geymslu.
Gott innra skipulag.
Nánari lýsing eignar:
Opin forstofa.
Eldhús með innréttingu frá Voke-3, innbyggð uppþvottavél, helluborð og bakarofni (AEG tæki).
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð, útgengt út á svalir með miklu útsýni.
Svefnherbergin tvö eru rúmgóð og bæði með fataskápum.
Á gólfum er vínilparket.
Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu. Á baðherbergi er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er rúmgóð með glugga. Parket á gólfi.
Vagna- og hjólageymsla er í sameign á jarðhæð.
Þar er hægt að kaupa sér aðgang að geymsluskápum.
Góð staðsetning, stutt í skóla, leikskóla og verslun.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is
Bókið skoðun
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





























