HÚSASJÁ

Fálkahlíð 5

01-0511 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

108 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

8681 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



397 dagar á sölu

sell

109.900.000 kr

1.022.326 kr/m²

Hér er hlekkur inn á auglýsingu allra óseldra eigna við Fálkhlíð 5, ÝTTU HÉR

** NÝ ÍBÚÐ ** EFSTA HÆÐ ** HAFIÐ SAMBAND VIРGuðrúnu Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 621-2020, tölvupóstur gudrun@fastlind.is ***

NÝ FULLBÚIN ÍBÚÐ MEÐ 26,5FM SÉR ÞAKSVÖLUM Í SÍÐASTA STIGAGANGI HJÁ DALHÚS BYGGINGAFÉLAGI. ÍBÚÐINNI FYLGIR EINNIG SÉR BÍLASTÆÐI INNI Í LOKUÐU BÍLASTÆÐAHÚSI

Guðrún Antonsdóttir kynnir með stolti nýjar íbúðir við Hlíðarenda í byggingu hjá DALHÚS, um er að ræða síðasta stigagang hússins. Glæsilegar íbúðir við FÁLKAHLÍÐ 5. Íbúðirnar afhendast fullbúnar að innan, með  öllum gólfefnum, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp með frysti og ljósum.  Ljós eru innbyggð að hluta, kubbaljós, ljósakúplar og kastarar fylgja. Baðherbergi eru flísalögð, bæði veggir og gólf. Gólf á þvottahúsum eru flísalögð.

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í 621-2020 / gudrun@fastlind.is

Nánari lýsing eignar 511, 3ja. herbergja íbúð á fimmtu hæð ( efsta hæð) með suðursvölum og sér þaksvölum

Forstofa með harðparketi á gólfi og yfirhafnaskáp

Stofa og opið eldhús, grá innrétting með efri og neðri skápum

Rúmgóð svefnherbergi með fataskápum

Baðherbergi með sturtu, ljósri innréttingu, handlaug og upphengdu salerni og handklæðaofn.

Sér þvottahús með flísum á gólfi

Geymsla í kjallara

Sér bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi

laus við kaupsamning

Stutt lýsing húss:

Fálkahlíð 5. Er stórglæsilegt 16 ibúða fjölbýlishús á fimm hæðum með 3ja og 4ra herbergja íbúðum

* Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS innréttingum, hvítar, brúnar eða gráar

* Fataskápar frá Parka, hvítir í herbergjum og forstofu

* Innbyggður ísskápur m. frysti, span helluborð og vifta. Blásturbakarasofn allt frá AEG eða

Electrolux og vifta frá Gíra

* Blöndunartækin eru frá Tengi en svört blöndunartæki frá GKS.

* KR Ark sér um alla hönnun

Dalhús hefur sérhæft sig í byggingu gæða íbúðarhúsnæðis. Eigendur félagsins eru með áratuga reynslu í byggingu íbúða sem nú telja þúsundir. Aðaleigandi félagsins er Sigurður Sigurgeirsson og framkvæmdastjóri er Bjarni Már Bjarnason (byggingarstjóri). Sigurður og Bjarni hafa starfað saman í 30 ár að uppbyggingu íbúða með hagsmuni kaupenda að leiðarljósi.

Metnaður Dalhúss hefur verið bygging fullbúinna íbúða og góð þjónusta við kaupendur. Allar íbúðir afhendast með gólfefnum, helstu ljósum og öllum nauðsynlegum raftækjum í eldhúsi þannig að kaupandi getur flutt inn án mikillar fyrirhafnar.

Bílastæðahús og bílskúrar:

Bílgeymsla er lokuð og upphituð (frostfrí) með loftræstingu. Allar íbúðir eiga eitt bílastæði.

Sameiginlegt bílastæðahús er fyrir heildar húsið.

Ytri frágangur og lóð.

Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin. Að utan verður húsið frágengið á eftirfarandi hátt. Þak er steinsteypt, með ásoðnum tjörupappa, einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate) og möl er lögð þar ofaná.  Frágengin niðurföll.  Húsið er að mestu einangrað og klætt að utan, en múraðir fletir eru málaðir.

Um svæðið og nærliggjandi: Miðbærinn er í göngufæri og því yndislegt að fá sér stuttan göngutúr á veitingahús, söfn, tónleika, sund eða niður á Tjörn. Íþróttaaðstaða Vals er við Hlíðarenda svæðið því stutt að fara fyrir börn og unglinga sem búa á svæðinu. Gönguleiðir um Öskjuhlíðina og fleirra.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á

byggingaframkvæmd stendur.

Allar breytingar að ósk kaupenda þurfa að fara í gegnum skrifstofur seljanda og geta haft áhrif á

afhendingartíma til seinkunnar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka en aldrei til lækkunar.

Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda.

Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Myndir í auglýsingu eru af samskonar eign í sama húsi

*** Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í 621-2020 / gudrun@fastlind.is

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Fálkahlíð 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27