HÚSASJÁ

Hlíðarfótur 19

01-0507 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

145 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

8681 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Hjólastólaaðgengi

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



638 dagar á sölu

sell

144.900.000 kr

1.001.382 kr/m²

MYNDIR ERU AF EIGNINNI SJÁLFRI *** HÆGT ER AÐ SKOÐA  ALLA DAGA *** ÍBÚÐINNI FYLGIR BÍLSKÚR MEÐ BÍLASTÆÐI FYRIR FRAMAN INNI Í LOKUÐU BÍLASTÆÐAHÚSI. SÉR SVALIR OG ÞAKSVALIR SNÚA TIL SUÐURS. ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. STÓRKOSTLEGT ÚTSÝNI.

Guðrún Antonsdóttir kynnir með stolti nýjar íbúðir við Hlíðarenda, glæsilegar íbúðir við HLÍÐARFÓT 19. Byggingaraðli er DALHÚS. Íbúðirnar afhendast fullbúnar að innan, með gólfefnum, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp með frysti og ljósum.  Ljós eru innbyggð að hluta, kubbaljós, ljósakúplar og kastarar fylgja. Baðherbergi eru flísalögð, bæði veggir og gólf. Gólf á þvottahúsum eru flísalögð.

Nánari lýsing eignar 507,  3ja. herbergja íbúð á fimmtu hæð/ efsta hæð með þaksvölum, svölum og bílskúr og bílastæði fyrir framan

Forstofa með harðparketi á gólfi og yfirhafnaskáp

Stofa og opið eldhús, grá innrétting með eyju. Gengið er út á SUÐUR svalir frá stofu/eldhúsi

Rúmgóð tvö svefnherbergi, með fataskáp.

Baðherbergi með sturtu, ljósri innréttingu, handlaug og upphengdu salerni og handklæðaofn.

Sér þvottahús með flísum á gólfi

Geymsla í kjallara, innan bílskúrs 11,5m

Bílskúr með stálvaski, 39,2fm

Bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi, fyrir fram skúr nr. B14

Áætluð afhending er við kaupsamning

Stutt lýsing húss:

Hlíðarfótur 19. Er stórglæsilegt 18 ibúða fjölbýlishús á fimm hæðum með 3ja og 4ra herbergja íbúðum

* Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS innréttingum, hvítar, svartar eða gráar

* Fataskápar frá Parka, hvítir í herbergjum og forstofu

* Innbyggður ísskápur m. frysti, span helluborð og vifta. Blásturbakarasofn allt frá AEG eða

Electrolux og hangandi viftur frá Gíra

* Blöndunartækin eru frá Tengi en svört blöndunartæki frá GKS.

* KR Ark sér um alla hönnun

Dalhús hefur sérhæft sig í byggingu gæða íbúðarhúsnæðis. Eigendur félagsins eru með áratuga reynslu í byggingu íbúða sem nú telja þúsundir. Aðaleigandi félagsins er Sigurður Sigurgeirsson og framkvæmdastjóri er Bjarni Már Bjarnason (byggingarstjóri). Sigurður og Bjarni hafa starfað saman í 30 ár að uppbyggingu íbúða með hagsmuni kaupenda að leiðarljósi.

Metnaður Dalhúss hefur verið bygging fullbúinna íbúða og góð þjónusta við kaupendur. Allar íbúðir afhendast með gólfefnum, helstu ljósum og öllum nauðsynlegum raftækjum í eldhúsi þannig að kaupandi getur flutt inn án mikillar fyrirhafnar.

Bílastæðahús og bílskúrar:

Bílgeymsla er lokuð og upphituð (frostfrí) með loftræstingu. Allar íbúðir eiga eitt bílastæði.

Sameiginlegt bílastæðahús er fyrir heildar húsið.

Ytri frágangur og lóð.

Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin. Að utan verður húsið frágengið á eftirfarandi hátt. Þak er steinsteypt, með ásoðnum tjörupappa, einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate) og möl er lögð þar ofaná.  Frágengin niðurföll.  Húsið er að mestu einangrað og klætt að utan, en múraðir fletir eru málaðir.

Um svæðið og nærliggjandi: Miðbærinn er í göngufæri og því yndislegt að fá sér stuttan göngutúr á veitingahús, söfn, tónleika, sund eða niður á Tjörn. Íþróttaaðstaða Vals er við Hlíðarenda svæðið því stutt að fara fyrir börn og unglinga sem búa á svæðinu. Gönguleiðir um Öskjuhlíðina og fleirra.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á

byggingaframkvæmd stendur.

Allar breytingar að ósk kaupenda þurfa að fara í gegnum skrifstofur seljanda og geta haft áhrif á

afhendingartíma til seinkunnar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka en aldrei til lækkunar.

Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda.

Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Myndir af útsýni eru teknar frá svölum á fjórðu og fimmtu hæð við Hlíðarfót 19.

*** Nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 621-2020, tölvupóstur gudrun@fastlind.is. ***

-----------------------------------------------------------------------

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Hlíðarfótur 19

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð