Fálkahlíð 5
01-0328 · 102 Reykjavík



53 dagar á sölu
82.900.000 kr
937.783 kr/m²
Betri Stofan fasteignasala Borgartún 30 og Atli S. Sigvarðsson fasteignasali kynna nýtt í einkasölu: Nýleg, vel skipulögð og sérstaklega rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð við Fálkahlíð 5 Reykjavík.
Eignin telur: Anddyri, opið rúmgott alrými (stofa og eldhús), fínt svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innaf baðherbergi, fínar svalir til vesturs, stóra geymslu í sameign ásamt bílastæði í bílageymslu.
Nánari lýsing:
Anddyri: með fataskáp, parket á gólfi.
Stofa: gott rými með stórum gluggum, parketi á gólfi og útgengi á fínar svalir til vesturs, með útsýni að Reykjavíkurflugvelli.
Eldhús: opið við stofu, þar er fín hvít innrétting, innbyggð uppþvottavél, ísskápur og tveir ofnar.
Svefnherbergi: rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: flísalagt og fallegt með hvítri innréttingu, ljósaspegli, handklæðaofni og einhalla sturtu með gleri.
Þvottahús: flott aðstaða í sér rými innaf baðherberginu.
Geymsla: stór og góð geymsla í sameign, skráð 19,5 fm, ásamt sameiginlegum hjóla og vagnageymslum.
Bílageymsla: gott stæði með rafhleðslu í upphitaðri og lokaðri bílageymslu, merkt 01B30.
Húsið er byggt af Dalhús ehf. - vandaður og reynslumikill verktaki.
Gildandi fasteignamat 2026 er kr. 84.050.000,-
Eignin er laus til afhendingar fljótlega. Mikil eftirspurn er eftir 2ja herbergja íbúðum á svæðinu.
Þetta er virkilega falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu, eignin er sem ný.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir














