HÚSASJÁ

Arnarhlíð 4

01-0309 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

110 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

8681 m²

Lóð

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



37 dagar á sölu

sell

104.900.000 kr

952.770 kr/m²

Borg Fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða  3ja herbergja á þriðju hæð í nýlegu húsi við Arnarhlíð 4 við Hlíðarenda í Reykjavík.  Íbúðin er skráð 110,1 fm þar af er geymsla 14,4 fm.

Komið er inn í forstofu með harðparketi á gólfi og yfirhafnaskáp.

Stofa og eldhús mynda opið og gott alrými með svörtum innréttingum og eyju sem fellur vel að rýminu. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir sem snúa vel við sólu.

Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með fataskápum.

Baðherbergi er stílhreint og vel búið, með sturtu, ljósri innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni.

Sér þvottahús er innan íbúðar, með flísum á gólfi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Gólfefni íbúðar er harðparket og flísar.

Í kjallara er rúmgóð geymsla og íbúðinni fylgir eitt bílastæði í lokuðu og upphituðu bílastæðahúsi, nr. B95.

Húsið – Arnarhlíð 4

Arnarhlíð 4 er glæsilegt fjölbýlishús með níu íbúðum á fimm hæðum, þar sem vandaður frágangur og hönnun eru í forgrunni.

Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS, í hvítu, svörtu eða hnotu

PAX fataskápar í herbergjum og forstofum

Innbyggð eldhústæki frá AEG og vifta frá Gíra

Blöndunartæki frá Tengi.

Staðsetning við Hlíðarenda sameinar rólegt og grænt umhverfi við nálægð við miðbæ Reykjavíkur. Miðbærinn er í göngufæri og stutt í veitingastaði, söfn, tónleika, sund og útivist við Tjörnina. Íþróttaaðstaða Vals er í næsta nágrenni og gönguleiðir um Öskjuhlíðina gera svæðið einstaklega heppilegt fyrir virkt og notalegt borgarlíf.

Nánari upplýsingar veitir:

Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali í tölvupósti victor@fastborg.is og í síma: 868 2222

Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali í tölvupósti ulfar@fastborg.is og í síma 788-9030

Kort af Arnarhlíð 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð