HÚSASJÁ

Dugguvogur 15

01-0208 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

105 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

3413 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



49 dagar á sölu

sell

92.900.000 kr

886.450 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilega 3ra herbergja lúxusíbúð á annarri hæð í sérlega vönduðu húsi í Vogabyggð Reykjavíkur. Íbúðin er 104.8 fm og er öll hin vandaðasta með sérsmíðuðum ítölskum innréttingum frá Gili Creation. Kvartssteinn er á borðum, gólfsíðir gluggar, gólfhiti, vandað vínilparket á gólfum og ítalskar flísar á votrýmum. Íbúðin er í sérflokki og var hvergi til sparað við hönnun og smíði hennar. Stæði fylgir eigninni í bílageymslu.

Nánari upplýsingar veitir: Lilja s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

Íbúð 208 er skráð 104,8fm og skiptist í anddyri með fataskápum, rúmgott alrými með opnu eldhúsi, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús og tvö góð svefnherbergi. Íbúðinni fylgir 5,5 fm geymsla og stæði í bílakjallara.

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:

Forstofa: Rúmgóð með góðu skápaplássi.

Eldhús: Er opið við stofu. Sérsmíðuð innrétting og eldhúseyja úr reyktri eik frá Gili Creation og á borðplötum og á veggnum bak við vaskinn er fallegur kvartssteinn. Innfelld lýsing í innréttingu, undirlímdur vaskur, blöndunartæki frá Grohe og vönduð tæki frá Ormsson, þ.e. span helluborð, blástursofn, innbyggð uppþvottvél, innbyggður ísskápur og gufugleypir.

Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóðar og bjartar og opnar við eldhús. Gólfsíðir gluggar á tvo vegu og útgengi á 5.2 fm svalir sem snúa til vesturs.

Baðherbergi: Mjög glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf með stórum, ítölskum terrazzo flísum. Innréttingin er sérsmíðuð úr reyktri eik með kvartsstein á borðplötu og undirlímdum vaski. Sturtan er rúmgóð (walk-in) með blöndunartækjum frá Gröhe og reyklituðu sturtugleri sem nær alla leið upp í loft.

Svefnherbergi 1: Mjög rúmgott, með vönduðu vínilparketi á gólfum, sérsmíðum fataskápum og gólfsíðum gluggum.

Svefnherbergi 2: Rúmgott með vönduðu vínilparketi á gólfum, sérsmíðum fataskápum og gólfsíðum gluggum.

Þvottahús: Er staðsett innan íbúðar með ítölskum flísum á gólfi og sérsmíðaðri innréttingu úr reyktri eik.

Geymsla: 5,5 fm geymsla fylgir íbúðinni. Geymsla er staðsett við stæði í bílageymslunni og er því stutt að fara.

Bílastæði: Sérmerkt stæði fylgir íbúðinni í bílageymslu (B14).

Sameign og garður: Sameignin er mjög snyrtileg og fallegur, sameiginlegur inngarður er milli húsanna.

Hér er frábært tækifæri til að eignast glæsilega íbúð í ört vaxandi hverfi, miðsvæðis í Reykjavík. Ítölsk hönnun og glæsilegt yfirbragð einkennir íbúðina en allar innréttingar voru sérsmíðaðar  af Gili Creation sem framleiddi m.a. innréttingar á 5 stjörnu hótelinu The Reykjavik EDITION. Þá var öll innanhússhönnun í höndum Ragnars Sigurðssonar, innanhússarkitekts. Fjölbreytt þjónusta er í göngufæri, stutt í stofnbrautir og svo er mikið af náttúruperlum í nágrenninu.

Nánari upplýsingar veitir: Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Dugguvogur 15

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð