HÚSASJÁ

Dalsbraut 34

01-0205 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

74 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2021

Byggingarár

2898 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla



147 dagar á sölu

sell

52.500.000 kr

708.502 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög góð 74,1m2 þriggja herbergja íbúð á annarri hæð með sérinngangi af svölum í fallegu 15 íbúða fjölbýli. Húsið er járn- og viðarklætt. Inngangur, eldhús, borðstofa, stofa með rúmgóðum svölum, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottavélaaðstöðu. Parket og flísar á gólfum. Stutt í leikskóla, skóla og verslanir. Þetta er tilvalin eign sem fyrstu kaup. Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik, löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 822-9415 - gunnar@fstorg.is

Nánari lýsing íbúðar:

Sérinngangur af svölum.

Gengið er inn í forstofu með góðum fataskáp í lofthæð.

Svefnherbergi með skáp á vinstri hönd og parket á gólfi.

Eldhús er með grárri innréttingu og kvartsborðplötu. Bakaraofn, spanhelluborð, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél.

Borðstofa og stofa. Gengið út á stórar svalir er snúa í vestur. Svalirnar eru hlýlegar og breiðar en þær eru viðarklæddar og með glervegg. Stór sameiginlegur bakgarður.

Hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.

Baðherbergið er með flísum á gólfi og í kringum sturtuna. Sturta, upphengt salerni, handklæðaofn.

Geymsla í sameign fylgir íbúðinni.

Sameiginleg hjólageymsla.

Örstutt í skóla og leikskóla og verslanir.

Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik, löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 822-9415 - gunnar@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald kr.  2.700.- kr. af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Dalsbraut 34

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð