HÚSASJÁ

Tryggvabraut 24

01-0306 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

53 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1973

Byggingarár

Heitur pottur



31 dagar á sölu

sell

38.200.000 kr

719.397 kr/m²

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Tryggvabraut 24 - 306

Um er að ræða bjarta tveggja herbergja orlofsíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi við Tryggvabraut 24 (Hotel apartments) Við húsið er sameiginleg verönd með heitum pottum og grillaðstöðu. Sér merkt stæði fylgir og sér læstur skápur í sameiginlegu anddyri.

Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi, stofu og eldhús í opnu rými og svefnherbergi.

Anddyri með parket á gólfi og góðum fataskáp.

Baðherbergi með flísum á gólfi, rennihurð, sturta flísalögð með glervegg, upphengt salerni, handklæðaofn og innrétting við vask.

Stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi, gluggar til suðurs. Innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.

Svefnherbergi innaf stofu með parket á gólfi og tveimur rennihurðum.

Til greina kemur að selja íbúð 308 líka en hún er í eigu sama aðila. Til að skoða þá eign má smella hér.

Annað:

**Bókunarstaða hefur verið mjög góð**

- Íbúðin er í skammtímaleigu og geta allar bókanir fylgt með við sölu

- Húsgögn fylgja

- Sér bílastæði er fyrir hverja íbúð á austurhluta bílastæðis.

- Ef að aðilar hyggjast ekki nýta íbúðina í virðisaukaskattskylda starfsemi þarf að greiða upp VSK kvöð.

- Hússjóður er um 25 þús á mánuði, innifalið í því er hiti, rafmagn og öryggiskerfi.

- Húsið var allt tekið í gegn og standsett 2020/2021.

- Í húsinu eru 20 orlofsíbúðir í eigu ýmissa félaga og fyrirtækja ásamt verslunarrými á jarðhæð.

- Vel staðsett í nálægð við verslanir, bakarí og ýmsa aðra þjónustu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

olafur@byggd.is

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955

Kort af Tryggvabraut 24

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Tryggvabraut 24, 01-0306 | Húsasjá