HÚSASJÁ

Vallarbraut 12

01-0102 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

85 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2021

Byggingarár

1559 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Þvottahús



115 dagar á sölu

sell

62.900.000 kr

738.263 kr/m²

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Vallarbraut 12, íbúð 102, 260 Reykjanesbær

Þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi. Eignin býður upp á tvö svefnherbergi, eldhús með vandaðri innréttingu og eyju, samliggjandi stofa/borðstofa, baðherbergi með walk-in sturtu og þvottahús innangengt frá forstofu. Sérnotareitur með svalalokun og gólfhiti í allri eigninni. Sérmerkt bílastæði fylgir.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 85.2 m², þar af er íbúðarrými 81,1 m² og sérgeymsla á jarðhæð hússins 4,1 m².

Eign merkt 01-02, fastanúmer 251-1639 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:

Forstofa er flísalögð með fataskáp.

Eldhús með vandaðri svart-brúnni innréttingu og eyju, tækjum frá AEG, þar með talið keramikhelluborð, bakaraofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Stálvaskur er fræstur í borðplötu. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð frá Grindin ehf og er með mjúklokunarbúnaði, vaski og blöndunartækjum frá Grohe. Lýsing undir efri skápum.

Stofa/borðstofa með gólfsíðum gluggum og vandaðri rennihurð út á sérnotareit. Harðparket á gólfum.

Hjónaherbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.

Svefnherbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.

Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu með vaski og speglaskáp.

Þvottahús innaf forstofu með innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð og skolvaski. Flísalagt gólf.

Sérnotareitur er með steyptu gólfi ásamt opnanlegri svalalokun.

Sérgeymsla á jarðhæð, 4,1 m² að stærð, ásamt hlutdeild í sameigninlegri hjóla/vagnageymslu, epoxý á gólfum.

Byggingarlýsing:

Íbúðarhús á 4 hæðum, byggt árið 2020. Húsinu er skipt niður í 15 eignir. Á fyrstu hæð eru eitt tæknirými í sameign allra ásamt 15 sérgeymslum ein fyrir hverja íbúð. Útveggir eru steinsteyptir og einangraðir að utan með steinullareinangrun. Húsið er klætt að utan með álplötum og timburklæðningu við innganga og svalir. Gólfplötur eru steinsteyptar. Þakplata er staðsteypt með tvöföldum eldsoðnum þakpappa, einangrað með þurreinangrun. Jarðvegsdúkur settur ofan á einangrun og síðan möl (farg). Gluggar og hurðir eru hefðbundnir ál/trégluggar.

Lóð og aðkoma:

Lóð umhvergis hús er graslögð. Gangstéttir við hús eru hellulagðar með snjóbræðslu. Bílastæði og akvegir malbikaðir. Alls eru 23 bílastæði á lóðinni, þar af 2 fyrir fatlaða. 15 stæði eru skipt, en 8 stæði eru óskipt. Öllum eignum fylgir eitt sérmerkt bílastæði á lóð. Búið er að tengja raflagnir fyrir hleðslustöð bifreiða frá stæði og inn í íbúð en það vantar hleðslustöðina sjálfa.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.

Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.

Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook

Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.

- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Kort af Vallarbraut 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29