HÚSASJÁ

Holtsvegur 57

01-0102 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

119 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2021

Byggingarár

3058 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



463 dagar á sölu

sell

99.900.000 kr

837.385 kr/m²

RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega og vel skiplulagða 3-4 herbergja íbúð á fyrstu hæð að Holtsvegi 57. Íbúðin skiptist í eldhús/borðstofu, stofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymslu innan íbúðar. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 119,3 fm. Til viðbótar er ca. 20 fm lokuð sólstofa.

✅ Afar hugguleg sólstofa með svalalokun

✅ Alrými íbúðar er mjög rúmgott og vel skipulagt. Rúmar vel setustofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og eldhús

✅ Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni

✅ Gólfhiti í öllum rýmum íbúðarinnar

Nánari lýsing:

Anddyri: Parket á gólfi og rúmgóður fataskápur.

Geymsla: Innan íbúðar. Parket á gólfi og gluggi í rýminu. Væri hægt að nýta sem svefnherbergi.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.

Barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.

Baðherbergi: Falleg baðinnrétting. Sturta með glerþil. Handklæðaofn og upphengt salerni.  Flísar á gólfi og veggjum að hluta.

Þvottahús: Inn af baðherbergi. Flísar á gólfi. Innrétting undir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur.

Eldhús: Parket á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting með eyju. Helluborð, háfur og bakaraofn í eyju. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur.

Stofa: Parket á gólfi. Rúmgott rými sem skiptist í borðstofu, setustofu og sjónvarpsstofu. Frá stofunni er útengt út í sólstofu. Sólstofan er hellulögð og með svalalokun.

Stæði í bílageymslu: Merkt B02

Hjóla- og vagnageymsla: Staðsett í sameign hússins.

Húsið:

Fallegt lyftuhús byggt árið 2021. Húsið er steinsteypt fimm hæða fjölbýlishús með 17 íbúðum í einum stigagangi. Á 1. hæð eru þrjár íbúðir. Á hæðinni er jafnframt anddyri, geymslur íbúða, hjóla- og vagnageymsla, inntaksrými og upphituð bílageymsla með fimm bílastæðum og fjórum bílskúrum. Á lóðinni eru svo 21 bílastæði í óskiptri sameign, þar af er eitt bílastæði fyrir hreyfihamlaða.

Umhverfið:

Húsið er í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins.

Allar frekari upplýsingar veitir:

Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is

Kort af Holtsvegur 57

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41