Valhallarbraut 757
01-0304 · 262 Reykjanesbæ



107 dagar á sölu
28.500.000 kr
643.341 kr/m²
Snyrtileg og björt tveggja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu hæð) með nýlegu parketi og nýlegri eldhúsinnréttingu við Valhallabraut 757. Tengi er fyrir þvottavél innan íbúðar. Geymsla fylgir eigninni. Húsið er steinsteypt steníklætt hús. Eignin getur verið laus fljótlega.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 44,3fm. og þar af er geymsla íbúðar 3fm.
Fasteignamat fyrir árið 2026 verður 24.800.000 kr.
Nánar um eignina:
Forstofa með fatahengi og nýlegt parket á gólfi. Við forstofuna er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús og stofa í opnu rými, nýleg eldhúsinnrétting, nýlegt helluborð, nýlegur ofn, nýlegur gufugleypir og nýlegt parket á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með nýlegu parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, handklæðaofn og dúkur á gólfi.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni og er staðsett á 1.hæð hússins.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á milli húsa í sér húsi.
Gluggar í góðu ástandi.
Næg bílastæði við húsið.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna








