HÚSASJÁ

Gefjunarbrunnur 18

01-0201 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

147 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2021

Byggingarár

296 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



192 dagar á sölu

sell

113.900.000 kr

773.252 kr/m²

Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Falleg og sérlega vel skipulögð 5 herbergja efri sér hæð í litlum og rólegum botnlanga í Úlfarsárdal. Eignin er mér sérinngangi í sérlega fallegu tvíbýlishúsi með tveimur sérbílastæðum undir skýli beint við húsið. í eigninni eru 4 rúmgóð svefnherbergi og tvö baðherbergi ásamt fataherbergi inn af hjónaherbergi. Sérinngangur er í eignina á jarðhæð, þaðan er gengið upp á efri hæð hússins og íbúðin er með gluggum í fjórar áttir á hæðinni. Búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl fyrir utan eignina við einkastæðin. Í íbúðinni er gólfhiti í öllum rými og innfeld lýsing er í flestum rýmum.

Stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttasvæði Fram sem er í hverfinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar:

Húsið er í litlum botnlanga með góðu aðgengi að bílastæðum í miðri götunni. Fyrir framan húsið eru tvö sér bílastæði undir opnu bílskýli. Gengið er inn um sérinngang á jarðhæð inn í íbúðina.

Jarðhæð:

Forstofa: Komið er inn í forstofu með fallegum flísum á gólfi og góðum fataskápum.

Geymsla: Undir stiga er lokuð geymsla.

Gengið er upp á efri hæðina um steyptan stiga með mjúku gráu teppi á þrepum og svörtu stálhandriði.

Efri hæð:

Þegar komið er upp á efri hæðina er komið inn á gang með fallegu harðparketi á gólfi sem liggur í L inn að alrými eignarinnar: Við ganginn eru þrjú af fjórum svefnherbergjum íbúðarinnar ásamt baðherbergi með þvottaaðstöðu.

Alrými: (Eldhús, borðstofa + setustofa)

Eldhús: Eldhúsið er í opnu rými með stofunni. Fallegt harðparket er á gólfi. Innrétting með efri og neðri skápum er í vinkil með góðu skápaplássi og vinnuplássi. Góður gluggi er við innréttinguna sem hleypir birtu inn í rýmið.

Stofa + borðstofa: Setustofa og borðstofa eru saman í opnu rými með eldhúsinu. Fallegt harðparket er á gólfi og gluggar eru í þrjár áttir. Útgengt er á rúmgóðar vestur svalir með útsýni þar sem ekkert hús er á bak við eignina.

Aðalbaðherbergi: Aðalbaðherbergið er með með fallegum sandlituðum flísum á gólfi og á veggjum. Stór lokuð sturta er beint á gólf með glervegg og glerhurð. Góð innrétting er undir vaski og í kringum aðstöðu sem er fyrir þvottavél og þurrkara. Fallegur hring spegill er á vegg með hulinni lýsingu. Opnanlegur gluggi er í rýminu.

Hjónasvíta: (Hjónaherbergi + fataherbergi + baðherbergi )

Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er með fallegu harðparketi á gólfi.

Fataherbergi: Gott fataherbergi er innan hjónaherbergis með fallegri og góðri innréttingu. Hengi, hillur og útdaganlegar skúffur.

Baðherbergi: Sér baðherbergi er inn af hjónaherberginu. Fallegar sandlitar flísar eru á gólfi og á veggjum. Góð innrétting er undir vaski, hringspegill er á vegg með hulinni lýsingu. Baðkar er í rýminu.

3 x svefnherbergi: þrjú auka svefnherbergi eru í eigninni. Öll herbergin er rúmgóð með harðparketi á gólfi og tvöföldum fataskápum.

Sameiginleg geymsla: Lítil sameiginleg geymsla er fyrir íbúðirnar tvær á jarðhæð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignsali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Kort af Gefjunarbrunnur 18

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu