Elísabetarhagi 1
05-0106 · 600 Akureyri



39 dagar á sölu
60.900.000 kr
718.160 kr/m²
Elísabetarhagi 1 íbúð 106 **** OPIÐ HÚS LAUGARDAGINN 7. FEBRÚAR MILLI KL.12.30 og 13.00 *****
Góð og vel skipulögð þriggja herbergja 78,9 fm íbúð á 1. hæð í fjölbýli með lyftu í Hagahverfi ásamt sérgeymslu 5,9 fm í kjallara. Samtals er eignin 84,4 fm.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu í kjallara.
Nánari lýsing:
Forstofan er með vínyl parketi á gólfi, opnu hengi og efriskáp.
Eldhúsið er með vínyl parketi á gólfi, borðkrókur og ljósri L-laga innréttingu með þiljum á milli skápa og stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Stofan er rúmgóð, með vínyl parketi á gólfi og rennihurð út á steyptar og yfirbyggðar svalir. Hægt er að koma fyrir svalalokun. Innfelld led lýsing er í lofti.
Svefnherbergin eru tvö með vínyl parketi á gólfum og góðum fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vegghengt wc og sturta með glerhurðum.
Í kjallaranum er sér geymsla skráð 5,9 fm að stærð
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallaranum með góðu aðgengi. Lítil rafknúin hurð er inn í rýmið sem auveldar aðgengi með stærri hluti.
Annað:
- Innréttingar frá Tak - innréttingar.
- Hljóðdempandi plötur eru í loftum í felstum rýmum.
- Loftskiptikerfi er í íbúðinni
- Mynd-dyrasímakerfi er í íbúðinni
- Gólfhiti er í íbúðinni.
Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf
Nánari upplýsingar veita:
Begga s: 845-0671 /begga@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir


















