HÚSASJÁ

Móstekkur 19

01-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

141 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2021

Byggingarár

1650 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



54 dagar á sölu

sell

83.900.000 kr

593.772 kr/m²

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Móstekkur 19. Gott nýlegt fjögurra herbergja endaraðhús 141,3 fm með bílskúr innst í botngötu. Sólpallur með heitum potti.

Húsið er laust til afhendingar við kaupsamning

Húsið er timburhús klætt með liggjandi bárujárni, áltré gluggar, byggt 2021. Möl í innkeyrslu, sólpallur og þökulögð lóð.

Innra skipulag.

Físalögð opin forstofa með fataskáp.

Hol. Eldhús og stofa í opnu rými. Svört eldhúsinnrétting með ljósri borðplötu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Tvöfaldur ofn. Hurð úr stofu á sólpall. Gólfsíðir gluggar á gafli hússins.

Þrjú svefnherbergi með fataskápum. Á gólfum er harðparket. Innbyggð ledlýsing með dimmerum. Hiti er í gólfum.

Flísalagt baðherbergi, innrétting og opin sturta. Flísalagt þvottahús og þaðan er innangengt í bílskúr.

Bílskúr er eitt opið rými, gert er ráð fyrir geymslu skv teikningu innst í bílskúrnum, þar er gönguhurð út í garð. Fellistigi upp á geymsluloft. Gönguhurð er í bílskúrshurð.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is

Bókið einkaskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Móstekkur 19

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu