Móstekkur 15
01-0101 · 800 Selfossi



14 dagar á sölu
109.900.000 kr
637.841 kr/m²
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Móstekkur 15. Vandað og virkilega fallegt fjögurra herbergja 172,3 fm parhús með bílskúr. Mjög stór aflokaður sólpallur með heitum potti.
Sjón er sögu ríkari.
Húsið er timburhús, byggt 2021 og klætt að utan með lituðu bárujárni.
Útihurðir og gluggar eru hvítir úr ál-tré.Vindskeiðar eru úr lituðu áli og álrennur innfeldar.
Innra skipulag: Forstofa, gestasalerni, eldhús, borðstofa og stofa, sjónvarpshol, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalagt með fallegum marmaraflísum, rúmgóður fataskápur og veggþiljur.
Forstofusalerni: Marmaraflísar á gólfi og upp einn vegg, upphengt salerni og innrétting.
Stofa/borðstofa/eldhús: Eru í opnu rými, parket á gólfi og gólfsíðir gluggar. Sérsmíðaðar innréttingar frá Fagus úr hnotu með góðri eyju. Rennihurð er út á pall.
Sjónvarpshol: Parket á gólfi og hljóðdempandi þiljur á vegg við sjónvarp.
Svefnherbergi: Eru þrjú talsins. Parket á gólfi og er fataherbergi inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi: Marmaraflísar á gólfi og veggjum, falleg innrétting, upphengt salerni og góð opin sturta.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Sérsmíðuð innrétting fyrir vélar í vinnuhæð, boðplötu og skolvask.
Bílskúr: Hann er skráður 33,9 fm með epoxy á gólfi og fellistigi upp á stórt geymsluloft.
Gólfhiti er í húsinu með stýringum. Innfeld ledlýsing.
Stór sólpallur ca 150 fm með skjólveggjum og heitum potti og þökulögð baklóð.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is
Bókið einkaskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



































