HÚSASJÁ

Dugguvogur 7

04-0202 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

70 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2021

Byggingarár

9044 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla



301 dagar á sölu

sell

68.900.000 kr

490.043 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Afar fallega og vel skipulagða 70.3 fm tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Dugguvog 7 í Reykjavík. Vandað hús byggt af ÞG Verk.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust aðgengi í sameign og kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum. Bílnúmeramyndavélar á innkeyrsluhurðum í bílakjallara sem lesa bílnúmer við innakstur.

Íbúðin skiptist í stofu sem er opið við eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.  Svalir til austurs frá stofu. Einkastæði í lokuðum bílakjallara á góðum stað. Góð 7,6 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.

Stofa: Með harðparketi á gólfi og útgengi á austursvalir. Stofa er opin við eldhús.

Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu með eyju frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðuhelluborð, bakaraofn og eyjuháfur. Stýranleg lýsing undir skápum og útloftun.

Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Svefnherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, góðum skápum og glugga til austurs.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 7,6 fermetrar að stærð. Málað gólf.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Myndavélavaktaður bílakjallari og aðgangsstýring (myndavélar) á bílakjallara.

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.

Nánari upplýsingar veitir:

Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is.

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Dugguvogur 7

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu