HÚSASJÁ

Arkarvogur 2

03-0201 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
19 myndir

84 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

9044 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



45 dagar á sölu

sell

76.900.000 kr

914.388 kr/m²

Rúmgóð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með yfirbyggðum svölum, sér þvottahús innan íbúðar, sér stæði í bílageymslu og sér geymslu í nýlegu lyftuhúsi við Arkarvog 2, 104 Reykjavík. Yfirbyggðar svalir. Sér þvottahús er innan íbúðar. Dýrahald er heimilt í húsinu. Húsið er byggt af ÞG verk.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 84,1fm. og þar af er geymsla íbúðar 7,2fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki skráð inn í fermetratölu íbúðar.

Nánar um eignina:

Anddyri með innbyggðum fataskáp og parket á gólfi.

Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu samliggjandi rými.

Eldhús er með hvítri innréttingu á einum vegg með efri og neðri skápum, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir og parket á gólfi.

Stofa og borðstofa rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt er úr stofunni út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir.

Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Barnaherbergi með skáp og parket á gólfi.

Baðherbergi með innangengri sturtu, góð innrétting, upphengt salerni og flísalagðir veggir að hluta og flísar á gólfi.

Þvottahús með vinnuborði, vask og flísum á gólfi.

Geymsla íbúðar er í kjallara hússins 7,2fm.

Bílastæði íbúðar er í bílakjallara og er lagt fyrir bílahleðslustöð í bílastæðinu.

Dýrahald er leyft í húsinu samkvæmt eignaskiptasamningi.

Íbúðin er staðsett í nýju hverfi við Vogabyggð. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í hverfinu sem staðsett er við Elliðavog. Stutt er í alla þjónustu og nálægð við hafið og ósnortna náttúru.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfaningu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Arkarvogur 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu