HÚSASJÁ

Kuggavogur 7

01-0314 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
44 myndir

109 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2022

Byggingarár

9044 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



141 dagar á sölu

sell

112.900.000 kr

1.036.731 kr/m²

Nýtt á skrá! Kuggavogur 7 Reykjavík - Bókið skoðun!

--- Glæsileg útsýnisíbúð alveg við Voginn ---

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar glæsilega og vel skipulagða 108,9 fermetra 4 herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Kuggavog 7 í Reykjavík. Um er að ræða vandað og viðhaldslítið hús byggt af ÞG Verk. Afar fallegt útsýni út á sundin, Snarfarahöfn, Esjunna, Móskarðshnjúka og víðar.

Rúmgott alrými sem myndar stofu og eldhús með eldhúseyju og góðu skápaplássi. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara á góðum stað. Útgengi úr stofu á svalir með glæsilegu útsýni út á sundin og til fjalla. Gott þvottaherbergi inn af íbúð. Rúmgóð 8,8 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust aðgengi á flestum hurðum í sameign og kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum. Bílnúmeramyndavélar á aðalhurð í bílakjallara sem lesa bílnúmer við innakstur.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með parketi á gólfi og góðum skápum.

Stofa: Er rúmgóð og með parketi á gólfi. Stórir gluggar til austurs og suðurs sem snúa út á Voginn með glæsilegu útsýni. Stofa rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús. Útgengi á svalir.

Svalir: Með glæsilegu útsýni úr á sundin, að Snarfarahöfn og til fjalla. Svalagólf með harðvið á svalagólfi og innfelldri lýsingu í skyggni.

Eldhús: Með fallegri innréttingu frá Nobilia (GKS) og eyju. Bakaraofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél og eyjuháfur. Stýranleg led-lýsing undir efri skápum.

Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.

Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun.

Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi og gluggum til suðurs.

Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.

Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 8,8 fermetrar að stærð. Málað gólf.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Myndavélavaktaður bílakjallari og aðgangsstýring (myndavélar) á bílakjallara.

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Kort af Kuggavogur 7

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44