HÚSASJÁ

Kuggavogur 3

01-0306 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
11 myndir

109 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

2022

Byggingarár

9044 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



37 dagar á sölu

sell

85.900.000 kr

786.630 kr/m²

Lind fasteignasala / Páll Konráð lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og vel skipulagða 109,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Kuggavog 3 í Reykjavík. Vandað hús byggt af ÞG Verk.

Rúmgott alrými sem er opin stofa við eldhús og auk þess er sér sjónvarpsstofa fyrir miðri íbúð. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara á góðum stað. Útgengi úr stofu á svalir með fallegu útsýni sem snúa inn í fallegan bakgarð sem er tyrfður lyngtorfi, garðbekkjum, kvöldlýsingu og leiktækjum. Gott þvottaherbergi inn af íbúð. Rúmgóð 9,8 fermetra sérgeymsla á jarðhæð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust aðgengi á flestum hurðum í sameign og kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum. Bílnúmeramyndavélar á aðalhurð í bílakjallara sem lesa bílnúmer við innakstur.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn.

Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.

Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum inn í bakgarð með fallegu útsýni. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús. Útgengi á svalir sem snúa inn í bakgarð hússins.

Svalir: Með fallegu útsýni úr á sundin, að Snarfarahöfn og til fjalla.

Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu með eyju frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðuhelluborð, bakaraofn og eyjuháfur. Stýranleg lýsing undir skápum og útloftun.

Sjónvarpsstofa: Með harðparketi á gólfi.

Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Baðkar með sturtutækjum. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.

Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun. Tengi fyrir vask er í þvottaherbergi.

Svefnherbergi I: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum inn í bakgarð.

Svefnherbergi II: Er gúmott með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum inn í bakgarð.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 9,7 fermetrar að stærð. Málað gólf.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett.

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Páll Konráð lögg. fasteignasali í síma 820-9322 eða á netfanginu pall@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Kuggavogur 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu