HÚSASJÁ

Hafnarbraut 12E

01-0401 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

96 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

7931 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr



44 dagar á sölu

sell

81.900.000 kr

852.237 kr/m²

Betri Stofan og Jason Ólafsson sími 7751515 kynna: Hafnarbraut 12E, íbúð 401, 3ja herbergja endaíbúð á 4. og efstu hæð með útsýni í nýlegu fjölbýli á Kársnesi.  Íbúðinni fylgir bílastæði með hleðslustöð í lokuðum bílakjallara og sérgeymsla.

Eignin er vel skipulögð með aukinni lofthæð.

Fasteignamat er kr. 81.550.000-

https://vimeo.com/fasteignamyndbond/hafnarbraut12e

Forstofa með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.

Eldhús hvít innrétting með eyju. Tæki eru frá AEG og Electrolux, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.

Stofa með parketi, gólfsíðir gluggar og útgengt út á rúmgóðar svalir til vesturs.

Hjónaherbergi með parketi, glugga á tvo vegu og góðum fataskápum.

Herbergi með parketi og fataskáp.

Baðherbergi með sturtu, flísum á gólfi og hluta veggja. Hvít innrétting, handklæðaofn og gluggi með opnanlegu fagi. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.

Sameiginleg vagna og hjólageymsla í sameign.

Sérgeymsla sem er skráð: 8,1 fm

Rólegt hverfi með fallegum gönguleiðum og stutt er í skóla, leikskóla, Sky Lagoon og alla helstu þjónustu. Auk þess mun Fossvogsbrúin sem er í byggingu tengja svæðið við útivistarperlur Nauthólsvíkur og Öskjuhlíðar. Íbúð á efstu hæð með útsýni.

Allar nánari upplýsingar gefur :

Jason Kristinn Ólafsson lögg. fasteignasali sími: 775-1515 eða jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Hafnarbraut 12E

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu