HÚSASJÁ

Hafnarbraut 12B

01-0311 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
44 myndir

114 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

7931 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla



18 dagar á sölu

sell

93.900.000 kr

825.858 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja  íbúð á 3ju hæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Um er að ræða eign sem er skráð skv fmr 113,7 fm og þar af er geymsla 15,1fm. Íbúðin er staðsett vestast á Kársnesinu í rótgrónu og vinsælu hverfi sem er í mikilli uppbyggingu. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Nánari lýsing:

Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp.

Stofa: Stofan er í opnu rými, björt og með glugga á þrjá vegu. Harðparket er á gólfi og fallegar sérsaumaðar gardínur geta fylgt með.

Eldhús: falleg hvít innrétting er í eldhúsinu með ljósri borðplötu, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð og fylgja með. Spanhelluborð með viftu yfir og ofninn er í vinnuhæð. Gott pláss er fyrir borðstofuborð og laus eyja sem getur fylgt með.

Svefnherbergi: Herbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.

Baðherbergi: Baðherbergið er mjög rúmgott og með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta. Stór sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og innrétting með ágætis skápaplássi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla: í sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni og er skráð skv fmr15,1fm. Geymslan er staðsett beint fyrir aftan bílastæði sem fylgir eigninni.

Bílastæði: eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Stæðið er vel staðsett við hlið inngangs í bílakjallarann.

Niðurlag: Þetta er virkilega björt og falleg íbúð staðsett vestast á Kársnesinu sem er rótgróið og vinsælt hverfi, í mikilli uppbyggingu. Nú eru hafnar framkvæmdir við Fossvogsbrúna, sem verður frábær tenging við Miðbæ Reykjavíkur. Nýr grunnskóli, Kársnesskóli og sambyggður honum verður nýr leikskóli. Örstutt er í Sky Lagoon og þá er ein besta sundlaug landsins, Kópavogslaug, í göngufjarlægð. Þá er ýmis þjónusta komin í hverfið eins og t.d. Brikk bakarí og veitingahúsið Brasserie Kársnes.

Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Kort af Hafnarbraut 12B

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð