Þjóðbraut 1
01-0103 · 300 Akranesi



178 dagar á sölu
122.900.000 kr
495.565 kr/m²
Borgir fasteignasala kynnir eignina Þjóðbraut 1, 300 Akranes, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 251-0327 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Þjóðbraut 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: birt stærð 248.0 fm ásamt hlutdeild í sameign og auk þess 20 fm geymsla í kjallara sem er sameign með rými 01-01.
Eignin er með virðisaukaskattskvöð sem væntanlegur kaupandi þarf að yfirtaka.
Söluyfrlit
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, tölvupostur bjarklind@borgir.is
Um er að ræða bjart og opið verslunar- skrifstofuhúsnæði á jarðhæð miðsvæðis á Akranesi. Húsnæðið er með gólfsíðum álgluggum og hátt til lofts. Gluggarnir eru opnaðir að innan með rafmagnsstýringu. Í loftunum er bæði gifs- og kerfisloft með led lýsingu að hluta og hallogen lýsingu að hluta og því mjög auðvelt að breyta lýsingu. Mjög auðvelt er að skipta húsnæðinu upp í fleiri hluta en í dag er þar starfrækt blóma- og gjafavöruverslun og því er sér kælir fyrir blómin. Innaf versluninni er kaffiaðstaða, salerni, lager með manngengnu háalofti og skrifstofa. Á gólfunum er steinteppi en flísar á blómasvæðinu, blómaakæli og á lagernum. Hiti er í öllu gólfinu. Næg bílastæði eru fyrir framan húsnæðið.
Umhverfi:
Staðsett í glæsilegu íbúðarhverfi í uppbyggingu á Akranesi.
Stutt er í alhliða þjónustu til að mynda í leikskóla, sundlaug, íþróttamannvirki, banka og verslun ásamt því að að þjónustumiðstöð eldriborgara er í næsta húsi og svo mætti lengi telja.Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna











